Á vef Veðurstofunnar segir að rigningaskil muni fara yfir landið í kvöld og nótt, koma inn á land á Vestfjörðum og færast svo til austurs. Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig þar sem hlýjast verður norðaustan og austanlands.
Á morgun verður suðvestan strekkingur um allt land en yfirleitt þurrt og allvíða léttskýjað.
Síðan er að sjá að vindur snúist til norðanáttar með kólnandi veðri um allt land, en kaldast verður fyrir norðan. Mest úrkoma þar einnig, en ekki er útlit fyrir mikla úrkomu en líkur eru á að hærri fjöll gráni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag: Suðvestan 8-15 m/s og víða bjartviðri, en líkur á smáskúrum á Suður- og Vesturlandi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast fyrir austan.
Á sunnudag: Vestlæg og síðar norðlæg átt, 5-13 m/s og rigning með köflum norðvestantil og síðar um landið norðanvert, en úrkomulítið syðra. Kólnandi veður.
Á mánudag: Hægt minnkandi norðanátt og minnkandi úrkoma fyrir norðan, en annars bjartviðri. Hiti 2 til 10 stig að deginum, mildast syðst.
Á þriðjudag: Norðan 8-15 og skúrir eða slydduél norðan- og austanlands, en annars bjart á köflum. Hiti 2 til 10 stig að deginum, mildast syðst.
Á miðvikudag: Norðan kaldi og skýjað austast, annars mun hægari og víða bjart veður. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag: Útlit fyrir norðan- og norðaustanátt. Skýjað á Norðaustur- og Austurlandi en úrkomulítið, en áfram bjart veður sunnan- og vestantil. Svalt í veðri.