Á dögunum var greint frá því að elstu starfandi fiskbúðinni á höfuðborgarsvæðinu, Fiskbúðinni í Trönuhrauni í Hafnarfirði, hafi verið lokað.
Fiskikóngurinn stakk niður penna við þessi tímamót og segir sorglegt hve hratt fiskverslanir týna tölunni. Þegar hann byrjaði í bransanum átján ára hafi um þrjátíu fiskbúðir verið í Reykjavík, nú séu þær sex.
Þróunin virðist hafa verið á þessa leið í gegnum árin. Í Helgarpóstinum kom fram árið 1981 að hinn hefðbundni fisksali gegni æ minna hlutverki í innkaupavenjum fólks. Fjöldi fiskbúða hafi á síðustu þrjátíu árum fækkað úr 50 til 60 í rúmlega 20 á stórhöfuðborgarsvæðinu.
Ein þeirra verslana sem hætti nýlega störfum er Fiskbúðin við Sundlaugaveg í Laugardal. Töluverð sorg ríkti í hverfishópnum á Facebook þegar versluninni var lokað í vor. Nú hafa nýir eigendur tekið við rekstrinum og opna þeir dyr sínar í dag.
Fjallað var um fækkun fiskbúða og yfirvofandi opnun í fréttum Stöðvar 2 á dögunum.
Nýr eigandi segir líklegustu skýringuna á fækkun fiskbúða í borginni vegna þess að varan sé aðgengilegri en áður. Fiskur fáist í flestum matvöruverslunum auk þess sem fólk kjósi að fá heimsendan mat.
„En það er bara svo mikill sjarmur að koma inn í sérverslun, fá þessa þjónustu. Fá þessa nánd, maður þekkir alltaf fólkið sem kemur. Þannig það er mjög gaman að geta boðið upp á þessa þjónustu því það er enn mikið af fólki sem vill halda í þetta,“ segir Aron Elí Helgason, annar eigandi verslunarinnar.
Kaupmaðurinn á horninu eigi enn erindi en þá skipti miklu máli að neytendur versli við sérvöruverslanir.
„Ég hef bara trú á því, sérstaklega hérna í þessu geggjaða hverfi, að fólk taki við því og mæti þeirri áskrorun að koma í fiskbúðina.“