Í fréttum Stöðvar 2 var rifjað upp þegar Atlanta fékk sína fyrstu júmbóþotu vorið 1993, en það þóttu stór tímamót. Stofnendur flugfélagsins, þau Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir, tóku á móti fyrstu vélinni.

En núna, rúmum þremur áratugum seinna, er komið að ákveðnum sögulokum.
„Já, sannarlega. Við erum að kveðja núna fjörutíuogsjöuna eftir 31 og hálft ár í rekstri. Fjörutíuogsjöan er búin að vera okkar vinnuhestur allan þennan tíma. Og við erum búin að byggja upp reksturinn á grunni fjörutíuogsjöunnar,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta.
„Já, þetta eru ákveðin tímamót að sjá á eftir vélinni enda synd, þetta er gullfalleg flugvél.“

Vegna tímamótanna var starfsmönnum ásamt mökum boðið í kveðjuferð til Marokkó og forstjórinn bauð sjálfur alla velkomna um borð. Áfangastaðurinn er borgin Casablanca.
„Við ætlum að vera þar fram á sunnudag og fólkið er sannarlega búið að vinna fyrir þessu hörðum höndum. Þanng að þetta verður skemmtilegt,“ segir Baldvin.
Og það er auðheyrt að flugmennirnir eiga eftir að sakna hennar.

„Þetta er vélin sem ég er búinn að vera lengst á og þykir alveg gríðarlega vænt um hana. Þetta er glæsilegt tæki, eins og þið sjáið. Þetta er svona partur af manni,“ segir Róbert Kristmundsson, yfirflugstjóri Air Atlanta.
Sem fraktþota mun hún þó lifa lengur í rekstri hjá félaginu þannig að flugmennirnir eiga eftir að fljúga tegundinni áfram.
„Hún er þýð og góð í flugi og fer vel með mann. En maður verður nú líka einhvern tímann að taka á móti nýja tímanum hjá félaginu. Ætli það verði ekki nokkur ár í viðbót,“ segir Þorsteinn Steindórsson, flugmaður í ferðinni.

„Við erum ennþá með fjölmargar 747-fraktvélar og þær munu næstu 6-8 árin halda áfram að þjóna okkur,“ segir forstjórinn.
Þau flugfélög heims, sem enn nýta hana til farþegaflugs, eru orðin teljandi á fingrum annarrar handar. Þetta verður því að öllum líkindum í síðasta sinn sem við sjáum drottningu háloftanna halda frá Leifsstöð með farþega.
Um 240 manns voru um borð í þessari 465 sæta flugvél, sem er í uppáhaldi hjá flugþjóninum Einari Sebastian Ólafssyni.

„Þetta er náttúrlega bara vélin, vél vélanna, finnst mér. Þannig að það verður mjög leiðinlegt þegar hún fer.
Það eru margir sem gráta í dag hér í fyrirtækinu. En líka, þetta er partí. Það er gaman, þetta er svona starfsmannaflug,“ segir Einar.
„Fyrir mér er bara ein drottning himnanna. Það er 747-vélin. Það er ekkert flóknara en það,“ segir forstjórinn Baldvin Már.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: