„Ég er algjörlega skíthrædd við köngulær, hleyp í burtu, öskra og hef aldrei snert slíka. Hræðslan finnst mér skrítin og fáránleg þannig ég skráði mig í köngulóafælnimeðferð hjá sálfræðinemum í Háskóla Íslands,“ segir Áslaug í myndbandi sem hún birti á Instagram-síðu sinni í dag.
Hún lýsir síðan meðferðinni sem hófst á því að hún átti að reyna að koma könguló ofan í glas og svo aftur úr því.
„Ég var skíthrædd við það og tók örugglega klukkutíma bara að komast yfir það verkefni. Þarna lokaði ég fyrst augunum af hræðslu, var aðeins að fríka út eins og heyrist,“ segir hún svo í myndbandinu og má heyra hana veina lítillega af ótta í bakgrunni
Meðferðin sem tók greinilega nokkra tíma hefur þó greinilega borið árangur af því undir lok myndbandsins segir Áslaug að hún hafi náð að vingast við köngulónna sem hún hafi sjálft nefnt Kalla könguló.