Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna er haldin með reglulegu millibili en síðast var hún haldin fyrir tæplega ári síðan í Dubai, í desember árið 2023. Á þeirri ráðstefnu var samkomulag undirritað þar sem ríki heims voru hvött til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Þetta var í fyrsta sinn sem ákall um umskipti ríkja heims í átt frá notkun jarðefnaeldsneytis er að finna í yfirlýsingu COP-ráðstefnu.
Enginn alþingismaður með að þessu sinni
Sendinefnd Íslands er skipuð tíu manns frá umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, Umhverfisstofnun og Landssambandi ungmennafélaga. Alþingismenn og ráðherrar hafa oft verið með í för á þessum ráðstefnum en ekki að þessu sinni.
Tveir fulltrúar frá Ungum umhverfissinnum fara einnig á ráðstefnuna, ásamt einum fulltrúa frá Seðlabankanum og öðrum frá Landvernd. Þá verða fulltrúar atvinnulífsins tuttugu og einn talsins.
Níu manns eru skráðir sem fulltrúar International Cryosphere Climate Initiative. Þau eru skráðir aðilar frá Íslandi en koma ekki fram í nafni samtakanna, ekki Íslands. Fleiri lönd munu skrá sjálfboðaliða samtakanna með sama hætti.
Fulltrúar Íslands:
Sendinefndin:
- Helga Barðadóttir, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneyti
- Magnús Agnesar Sigurðsson, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneyti
- Stefán Guðmundsson, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneyti
- Steinunn Sigurðardóttir, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneyti
- Elín Björk Jónasdóttir, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneyti
- Elín Rósa Sigurðardóttir, utanríkisráðuneyti
- María Erla Marelsdóttir, utanríkisráðuneyti
- Brynhildur Sörensen, utanríkisráðuneyti
- Nicole Keller, Umhverfisstofnun
- Viktor Pétur Finnsson, Landssamband ungmennafélaga
Aðrir:
- Tinna Hallgrímsdóttir, Seðlabankinn
- Hrefna Guðmundsdóttir, Ungir umhverfissinnar
- Laura Sólveig Lefort Scheefer, Ungir umhverfissinnar
- Þorgerður M Þorbjarnardóttir, Landvernd
Frá atvinnulífinu:
- Nótt Þórberg, Green by Iceland
- Ríkarður Ríkarðsson, Landsvirkjun
- Viktoría Alfreðsdóttir, Green by Iceland
- Edda Sif Pind Aradóttir, Carbfix
- Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Efla verkfræðistofa
- Carine Chatenay, Verkís verkfræðistofa
- Ólafur Teitur Guðnason, Carbfix
- Haukur Þór Haraldsson, Verkís
- Árni Hrannar Haraldsson, Orka náttúrunnar
- Birta Kristín Helgadóttir, Efla
- Bjarni Herrera, Accrona
- Kristjana María Kristjánsdóttir, CRI
- Hans Orri Kristjánsson, Green by Iceland
- Caroline Ott, Climeworks
- Arna Pálsdóttir, Reykjavík Energy
- Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, Orka náttúrunnar
- Lotte Rosenberg, Carbon Recycling International
- Adrian Matthías Siegrist, Climeworks
- Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, Carbfix
- Snorri Þorkelsson, Orkuveitan
- Egill Viðarsson, Verkís
Frá International Cryosphere Climate Initiative:
- Josep María Bonsoms García
- Shaakir Shabir Dar
- Christina Sophia Claudia Draeger
- Amy Diane Imdieke
- Shivaprakash Muruganandham
- Arash Rafat
- Emma Renee Robertson
- Sarah Elise Sapper
- Ella Fernie Wood