Í fréttatilkynningu um ráðninguna segir að Ísold hafi mikla reynslu af sölumálum og markaðssetningu á upplýsingatæknilausnum. Hún sé með BS-gráðu í viðskiptafræði og MS-gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Hún hafi starfað hjá OK síðan 2019, þar sem hún hafi hafið feril sinn sem sölustjóri.
„Við erum afar ánægð með að fá Ísold til að taka við stöðu markaðsstjóra hjá OK. Hún hefur sýnt mikla hæfni og þekkingu í gegnum störf sín hjá fyrirtækinu og hefur verið lykilaðili í að byggja upp og styrkja vörumerkið okkar og styðja við sölustarfið okkar. Með reynslu hennar og metnaði erum við sannfærð um að hún muni leiða markaðsstarfið af festu og árangri,“ er haft eftir Gunnari Zoëga, forstjóra OK.