Þetta kemur fram í umfjöllun Guardian. Ian birtist fyrst á skjánum sem Harold í áströlsku sápuóperunni árið 1987. Þá birtist hann sem nýr kærasti Madge Mitchell, persónu Anne Charleston. Ian hefur reglulega verið fastagestur á skjánum í þáttunum heimsfrægu sem sýndir hafa verið hérlendis á Stöð 2 um árabil, þó með hléum.
„Ég komst að því fyrir nokkrum mánuðum að ég væri með krabbamein. Mjög illvígt og ólæknandi krabbamein og þeir búast við því að ég muni deyja,“ segir Ian í tilkynningu. Þar segir hann því ekki um að ræða sína síðustu daga í Nágrönnum heldur almennt í vinnu.
Þá segist leikarinn hafa sætt tilraunameðferð af hálfu lækna sem vonist til þess að geta þannig unnið bug á krabbameininu. Smith segist stoltur af sínum verkum á sinni ævi, hann og félagar sínir hafi ekki bara búið til sápuóperu, heldur bestu sápuóperu sem til er.
„Ég vona alla daga að ég muni ekki finna fyrir neinum sársauka, því það er upphafið að hinu slæma. Ég hef fylgst með svo mörgum gefa upp öndina. Ég hef orðið vitni að slæmum dauðdögum og góðum. Ég vona að ég fái góðan endi.“
Eins og áður segir hefur Smith verið í þáttunum heimsfrægu með hléum. Þannig lék hann Harold í fjögur ár frá 1987 til 1991. Hann mætti svo aftur á skjáinn fimm árum síðar 1996 og hélst þá sem hluti af nágrannahópnum í Erinsbæ um þrettán ára skeið til 2009. Hann mætti svo aftur árið 2011 í stutta stund. Það var svo ekki fyrr en til stóð að hætta tökum á Nágrönnum sem hann mætti í meintan lokaþátt árið 2022 en hann hefur síðar verið hluti af þáttunum eftir að Amazon Freeve kom þeim til bjargar.