Innlent

Stígarnir fá fall­ein­kunn hjá hjólafólki

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Vetur er skollinn á á höfuðborgarsvæðinu þó að það hafi hlýnað í veðri síðustu tvo sólarhringa.
Vetur er skollinn á á höfuðborgarsvæðinu þó að það hafi hlýnað í veðri síðustu tvo sólarhringa. vísir/vilhelm

Töluverð hálka hefur myndast á höfuðborgarsvæðinu síðustu sólarhringa. Hjólreiðafólk og gangandi eru allt annað en sáttir með stígahreinsun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og víðar. 

„Mjög erfið færð á göngu- og hjólastígum í morgun. Fór frá uppsveitum Kópavogs niður á Laugaveg, tók tvöfalt lengri tíma en vanalega. Vonandi ná sveitarfélögin að vinna niður þennan klaka eitthvað í dag annars verður ófremdarástand á stígunum eitthvað viðvarandi,“ skrifar einn á Facebookhópnum Samgönguhjólreiðar.

„Algjör fallleinkunn hjá þeim sem eiga að sjá um stígahreinsun, frá miðbæ að Gullinbrú er "brotfæri" þ.e. miklar líkur á beinbrotum, mun betra í Grafarvogi,“ skrifar annar.

„Var að skoða borgarvefsjána. Mér sýnist að t.d. Sæbrautin hafi ekki verið tekin fyrr en 8:30 ca., sem er allt of seint. Og miðað við kommentin hérna í grúppunni þá hafi þetta verið illa gert. Maður var einhvernveginn að vona að eftir alla þessa yfirferð og nefndarumræður og allt að þetta yrði betra í vetur en þetta lofar ekki góðu,“ skrifar annar. 

Egill Helgason fjölmiðlamaður leggur sömuleiðis orð í belg.

Ísland er eitt mesta hálkuland í heimi en þjóðinni sem hér býr er sérlega lítið annt um að ráða niðurlögum hálkunnar í nærumhverfi sínu. Frekar skulum við þola hálkuslys smá og stór.

„Akureyri er hálkuhöfuðborg heimsins. Ekkert saltað - vont fyrir bílalakk,“ skrifar Árni Snævarr. 

Hægt er að fylgjast með vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar á vefnum Borgarvefsjá

Á morgun má búast við hita í kringum frostmark, norðaustan 8-15 m/s með snjókomu eða slyddu síðdegis og rigningu við suður- og austurströndina, en úrkomulítið norðvestantil, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×