Innlent

Þing­flokkar funda hver í sínu lagi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland hafa nú verið í stjórnarmyndunarviðræðum í rúma viku. Fyrsti formlegi fundurinn var haldinn 4. desember.
Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland hafa nú verið í stjórnarmyndunarviðræðum í rúma viku. Fyrsti formlegi fundurinn var haldinn 4. desember. Vísir/Vilhelm

Þingflokkar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funda hver í sínu lagi í hádeginu á Alþingi í dag. Stjórnarmyndunarviðræður halda einnig áfram. Formenn flokkanna hafa ekki fundað einar en munu mögulega gera það síðar í dag.

Vinnuhópar halda áfram vinnu sinni. Alls hafa verið skipaðir sex vinnuhópar en ekki hefur verið gefið út hverjir eru í þeim eða um hvað er fjallað í þeim. Það staðfestir Ingileif Friðriksdóttir aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar.

Stefna á að ljúka fyrir áramót

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hafa allar lýst því frá því að viðræðurnar hófust að þær stefni á að ljúka þeim fyrir jól eða áramót.

Þorgerður Katrín sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að hún væri vonbetri en daginn áður en að enn ætti eftir að ræða nokkur álitaefni. Í vikunni var greint frá lakari afkomuhorfum ríkissjóðs sem hefur haft áhrif á viðræðurnar.

Sjá einnig: Bjart­sýn á að til verði stjórn sem þori að taka á­kvarðanir

„Efnahagsmálin eru að mínu mati alfa og ómega upphafs þessarar ríkisstjórnar. Við erum að vanda okkar þar. Þessar tölur frá fjármálaráðuneytinu um verri afkomu ríkissjóðs gera verkefnið að einhverju leyti snúnara, en við nálgumst það af mikilli festu, ábyrgð og hæfilegri bjartsýni,” sagði Þorgerður í gær.

Kristrún sagði fyrr í vikunni formennina taka þessu afar alvarlega en að þær væru tilbúnar að taka ákvarðanir sem fyrri ríkisstjórn hafi ekki treyst sér í.

Sjá einnig: Þrír hópar vinna að mál­efnum fyrir nýja ríkis­stjórn

Inga Sæland sagði í vikunni að hún væri bjartsýn og að stjórnarsáttmálinn sem væri í myndun væri skýr.

„Ég held að við séum allar sammála um að hann sé að minnsta kosti það skýr, að hann verði flottari en sá sem við fengum í fangið síðast. Sem var opinn í báða enda og frekar loðinn. En við erum bara að vanda okkur og munum gera okkar besta og það er ekki hægt að ætlast til meira. Ég er bara mjög bjartsýn,“ sagði Inga.


Tengdar fréttir

Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir

Stjórnmálaflokkar, aðildarfélög þeirra og einstaka frambjóðendur til Alþingis vörðu samtals um 44,8 milljónum króna í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta síðustu 30 dagana fyrir kosningar. Mestu varði Sjálfstæðisflokkurinn eða rétt tæpum níu milljónum króna, þá Flokkur fólksins sem notaði rúmar 7,5 milljónir í slíkar auglýsingar og Framsóknarflokkurinn kemur þar fast á hæla með rúmar 7,2 milljónir sem fóru í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta, það er Facebook og Instagram. Samfylkingin er í fjórða sæti og eyddi tæpum 5,7 milljónum og þá Miðflokkurinn sem eyddi rétt undir 4,6 milljónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×