Innlent

Svara Bjarna fullum hálsi: „Hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkis­sjóð“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir héldu blaðamannafund í dag um stjórnarmyndunarviðræður.
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir héldu blaðamannafund í dag um stjórnarmyndunarviðræður. vísir/einar

„Ég myndi vísa þessu á Bjarna Benediktsson, hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð og félagar hans.“

Þetta sagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins á blaðamannafundi í dag. Þar svaraði hún ummælum Bjarna Benediktssyni sem tjáði mbl.is í dag að hann teldi formennina búna að „pakka í vörn“. 

„Hún er búin að pakka í vörn með því að senda út skila­boð um það að staðan sé nú kannski miklu erfiðari og kannski sé þetta miklu flókn­ara og kannski þurfi mjög mikl­ar mála­miðlan­ir,“ er haft eftir Bjarna.

Sigurður Ingi tók í svipaðan streng í samtali við fréttastofu í dag, þar sem hann sagði tölur um verri ríkisafkomu næstu ára hafa legið fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Hæglega væri hægt að framreikna þær tölur.

„Ég tek hundrað prósent undir það hjá Ingu, þetta er afkoma sem við höfum ekki snert,“ sagði Kristrún Frostadóttir.

„Þetta eru þeirra fjárlög, sem þau samþykktu með þessum hætti. Þetta er þeirra bú, sem þau eru að skilja við með þessum hætti. Við erum bara meðvituð um hvaða búi við erum að taka. Þannig spurningin ætti frekar að beinast að starfandi starfsstjórn og fyrri ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Hvers vegna þau hafi ekki haldið betur utan um hlutina.

Við erum einfaldlega að vitna í staðreyndir sem birtust á vefsíðu fjármálaráðuneytis. Þetta er ekki mat, ekki skoðun, þetta eru staðreyndir máls. Við, þessi hópur, kannski ólíkt fyrri ríkisstjórnum, tekur þessari stöðu alvarlega, en við erum samt jákvæðar á að það sé hægt að vinna vel úr því. Þess vegna erum við að leggja á okkur alla þessa vinnu, í staðinn fyrir að setja saman bara samsuðu af orðum, sem við getum ekki staðið við,“ sagði Kristrún ennfremur. 

Þær stefna á að því að hefja ritun stjórnarsáttmála eftir helgi. Nánar um það hér:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×