Innlent

Mat­vöru­markaðurinn harðnar og harðnar á Sel­fossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg mætti í nýju verslunina og bauð forsvarsmenn hennar velkomna með verslunina á Selfoss. Hann er hér til vinstri með þeim Gunni Líf Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa og Gunnari Agli Sigurðssyni, forstjóra Samkaupa.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg mætti í nýju verslunina og bauð forsvarsmenn hennar velkomna með verslunina á Selfoss. Hann er hér til vinstri með þeim Gunni Líf Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa og Gunnari Agli Sigurðssyni, forstjóra Samkaupa. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Samkeppni á matvörumarkaði á Selfossi harðnar og harðnar því Nettó var að opna þar þúsund fermetra verslun en fyrir er Nettó með aðra verslun í bæjarfélaginu, auk þess að vera með Krambúð. Bónus og Krónan eru líka á Selfossi.

Nýja Nettóverslunin er við Eyraveginn á Selfossi þar sem Húsasmiðjan var áður til húsa en verslunin var opnuð í gær. Um þúsund fermetra verslun er að ræða. Með nýju versluninni harðnar enn samkeppnin á matvörumarkaði neytendum til góðs því allar verslanirnar reyna nú að bjóða upp á lægsta og hagstæðasta vöruverðið þannig að fólkið komi þar sem lægsta verðið er.

Nettó er í eigu Samkaupa og eru verslanir samstæðunnar orðnar rúmlega 60 talsins undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland.

Gunnur Líf Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóra verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa. Hún er ánægð með að Nettó hafi opnað aðra verslun á Selfossi.

„Þetta er þúsund fermetra verslun þannig að ég hlakka til að fá alla Sunnlendinga hér að versla. Við höfum gríðarlega trú á þessu svæði. Við vitum að uppbyggingin er mikil í Árborg og hér í sveitarfélögunum í kring. Við erum komin hér til að vera,” segir Gunnur Líf.

Og þetta þýðir náttúrulega heilmikla samkeppni á matvörumarkaðnum hérna er það ekki?

„Jú og við erum hér að keppa, við erum að keppa með Nettó á lágvörumarkaði og ætlum að gera það áfram þannig að það verður bara jákvætt og gott,” segir Gunnur.

Það hefur verið meira en nóg að gera í nýju versluninni eftir að hún opnað í gær.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Gunnur segir að nýtt app Nettó hafi algjörlega slegið í gegn með jóladagatali en það eru 85 þúsund meðlimir í appinu.

„Það seldust sex tonn af nautakjöt í gær hjá okkur af nautalundum á apptilboði og það er mun meira en í fyrra og við erum bara gríðarlega ánægð með hvað viðskiptavinir eru að taka okkur vel,” segir Gunnur Líf.

Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóra verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa, ásamt Finni Hafliðasyni, verslunarstjóri nýju verslunarinnar á Selfossi og Heiðari Róberti Birnissyni, aðstoðarframkvæmdastjóri á verslunar- og mannauðssviði SamkaupaþMagnús Hlynur Hreiðarsson

Brosið fer ekki af Finni Hafliðasyni, verslunarstjóra nýju Nettóverslunarinnar á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×