Grikkinn Giannis Antetokounmpo var óumdeildur mikilvægasti maður leiksins í úrslitaleiknum, á leiktíð númer tvö í þessari keppni.
Úrslitaleikurinn fór fram í Las Vegas og Antetokounmpo lagði allt undir en hann skoraði 26 stig, tók heil 19 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Þá sýndi hann einnig mögnuð varnartilþrif.
GIANNIS, BUCKS WIN THE #EmiratesNBACup 🏆
— NBA (@NBA) December 18, 2024
🔥 26 PTS
🔥 19 REB
🔥 10 AST
🔥 3 BLK
🔥 2 STL
The Greek Freak put on a SHOW in Vegas! pic.twitter.com/tHDReTvS25
Sigurinn færði leikmönnum Bucks rúmar 40 milljónir króna aukalega en leikmenn tapliðsins fengu tæplega 30 milljónir króna hver.
Bucks, sem urðu NBA-meistarar árið 2021, hófu leiktíðina illa í deildinni í haust og töpuðu átta af fyrstu tíu leikjum sínum. Síðan þá hefur liðið verið á uppleið og titillinn í nótt gefur fyrirheit um að liðið ætli sér stóra hluti í vor. Um það voru leikmenn og þjálfarinn Doc Rivers sammála.
„Við munum hala áfram að bæta okkur og skuldbinda okkur. Verkinu er ekki lokið,“ sagði Antetokounmpo.
"We're going to improve and going to stay locked in, because the job's not done"
— NBA TV (@NBATV) December 18, 2024
Giannis with a message and celebration after being named #EmiratesNBACup MVP 😤😆 pic.twitter.com/NAyjGOwYqM
„Við áttum í basli í byrjun leiktíðar. En enginn hérna efast um hvað við getum gert og hvað við getum orðið, og við héldum bara áfram. Við stóðum saman og þetta er hliðarárangur þess að lið standi saman. En við eigum verk fyrir höndum,“ sagði Rivers og ljóst að menn horfa til stóra titilsins í júní.
Heim frá Vegas sem betra lið
Nýi NBA-deildabikarinn virðist henta Bucks en liðið hefur aðeins tapað einum af tólf leikjum sínum frá upphafi keppninnar í fyrra, gegn Indiana Pacers í undanúrslitunum í fyrra, áður en LA Lakers lönduðu fyrsta titlinum. Í ár vann Milwaukee sem sagt alla sjö leiki sína.
„Þetta er frábært fyrir liðið okkar. Við erum að verða betri. Við vitum að við förum frá Vegas sem betra lið. Ég er svo stoltur af þessum hópi,“ sagði Antetokounmpo.
Damian Lillard var einnig öflugur fyrir Milwaukee og skoraði 23 stig, en liðið setti niður sautján þriggja stiga skot í leiknum. Hjá Thunder var Shai Gilgeous-Alexander bestur og skoraði 21 stig en Jalen Williams skoraði 18. Liðið hafði skorað að lágmarki 99 stig í öllum leikjum tímabilsins til þessa en fann ekki þann takt gegn Milwaukee-liði í stuði.
Giannis gets the REJECTION 🚫 pic.twitter.com/lnILv5oIYk
— NBA TV (@NBATV) December 18, 2024