„Þetta eru grunnatvinnuvegir þjóðarinnar og þarna er verðmætasköpunin. Þannig ég er full tilhlökkunnar að takast á við þetta verkefni í nánu samstarfi við hagsmunaaðila bæði nær og fjær,“ segir hún.
„Fyrstu skref eru að kynna mér málin, ég er nýkomin með stjórnarsáttmálann í hendurnar, svo er það auðvitað innlit í ráðuneytið, hitta og kynnast samstarfsfólki til næstu ára. Svo held ég að það liggi alveg fyrir að það verði öðruvísi bókajól hjá mér í ár en yfirleitt áður,“ segir hún.
Boðar aðeins þær breytingar sem verða í stjórnarsáttálanum
Það eru auðvitað stór mál þarna undir og Viðreisn hefur auðvitað haft mjög ákveðnar skoðanir á sjávarútvegsmálum, þú boðar þá væntanlega breytingar þar?
„Ég bara boða þær breytingar sem eru að finna í stjórnarsáttmálanum, nú liggur það bara fyrir og þetta verður bara unnið mjög vel vonandi í sem mestri sátt og samlyndi. Markmiðið er held ég hið sama hjá okkur öllum, það er að halda áfram að efla verðmætasköpun öllum almenningi hér á landi til góða.“
Í stefnuskrá Viðreisnar segir að flokkurinn vilji að í stað veiðigjalds verði ákveðinn hluti kvótans settur á markað á hverju ári, og boðinn út sem nýtingarsamningur til 20 ára. Varðandi landbúnaðinn segir Viðreisn að draga þurfi úr miðstýringu í landbúnaði og auka frelsi, bændum og neytendum til hagsbóta.
„Lækkun tollahindrana skapar tækifæri fyrir landbúnaðinn,“ segir í stefnu þeirra um landbúnaðinn.
Stjórnarsáttmálinn verður kynntur á blaðamannafundi klukkan 13.