„Þetta snýst um okkur, ekki einn leikmann. Þegar við skoruðum mikið af mörkum áður og Erling var afkastamikill, var það liðinu að þakka. Og þegar við erum í vandræðum varnarlega, á miðsvæðinu, þá er það öllum að kenna,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi í dag, til upphitunar fyrir leikinn gegn Everton þann 26. desember.
Norðmaðurinn sem um ræðir er að öllu jafnan markavél. Hann byrjaði tímabilið á tíu mörkum í fimm deildarleikjum en hefur síðan aðeins skorað þrjú mörk í tólf leikjum. Á sama tíma hefur City sigið niður í sjöunda sæti deildarinnar og núna tapað sex af síðustu átta leikjum.
„Ef þetta snerist bara um einn leikmann væri leikurinn auðveldur. Það er ekki svo. Erling er mikilvægur fyrir okkur, hefur verið það og verður áfram mikilvægur fyrir okkur og við munum reyna að gera hlutina betur, koma honum betur að notum.“
Spurningum um ástæður þess að gengi liðsins hefur ekki verið gott gat Guardiola ekki svarað en vonar að liðið rétti sig aftur á sigurbraut, þó Everton gæti reynst erfiður andstæðingur.
„Við fáum annað tækifæri á öðrum degi jóla til að reyna að vinna, annað tækifæri fyrir leikmennina að sýna hvað í þeim býr, koma til baka. Við verðum betri með tímanum...
Sean Dyche [þjálfarinn] er með gott varnarskipulag, virkilega góðar færslur varnarlega og sóknarlega,“ sagði Pep um Everton sem hefur haldið hreinu í fimm af síðustu sex deildarleikjum, nú síðast gegn Arsenal og Chelsea.
Um meiðsli hjá Manchester liðinu sagði Guardiola John Stones, Matheus Nunes og Ederson verði tilbúnir til átaka þegar City tekur á móti Everton.
Leikurinn hefst klukkan hálf eitt á öðrum degi jóla, 26. desember, og verður í beinni textalýsingu á Vísi.