Will Ferrell, hinn margrómaði grínisti og leikara brá sér á leik í gær þegar hann fór á leik Los Angeles Kings og Philadelphia Flyers með fjölskyldu sinni. Þá skellti hann sér í búning Buddy og virtist hann reykja sígarettu og drekka bjór.
Eðli málsins samkvæmt tóku margir eftir þessu sprelli Ferrell og var rætt við hann. Þá sagði hann Buddy hafa átt mjög erfiða jólahátíð.
Buddy the Elf isn't looking too good these days... 😭🤣 pic.twitter.com/tGgo6KGFSf
— Gino Hard (@GinoHard_) December 30, 2024
Myndin um Buddy er enn þann dag í dag mjög vinsæl jólamynd, þó hún hafi komið út árið 2003. Hún fjallaði um dreng sem ólst upp á verkstæði jólasveinsins með álfunum en ferðaðist til New York til að finna raunverulegan föður sinn, sem leikinn var af James Caan.
Myndin sló í gegn á sínum tíma en eins og rifjað er upp í frétt Hollywood Reporter sagði Ferrell eitt sinn frá því að hann óttaðist við gerð myndarinnar að um hann hefði gert mikil mistök með því að taka að sér hlutverkið.
Þá sagði Ferrell frá því árið 2021 að hann hefði hafnað 29 milljónum dala fyrir að leika í framhaldsmynd. Hann sagðist ekki geta leikið af myndinni og kynnt hana af einlægni og hafnaði hann því peningunum, þó það hefði verið erfitt.
