Vinnufundur ríkisstjórnarinnar á Þingvöllum hefst í fyrramálið og verður fram eftir degi að sögn Eyjólfs Ármannssonar nýs samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
„Þetta verður svona vinnufundur hjá okkur á Þingvöllum. Ég hlakka til,“ segir Eyjólfur.
Stórframkvæmdir fram undan
Eyjólfur sem hitti allt starfsfólk ráðuneytisins í morgun segir mörg stór verkefni fram undan eins og framkvæmdir um allt land í samgöngum og jarðgangagerð.
„Sundabraut er forgangsmál. Það kemur úr umhverfismati um Sundabraut og það þarf að ákveða hvort að það verði brú eða jarðgöng núna á vormánuðum. Í stjórnarsáttmálanum.er gert ráð fyrir að fjárfest sé í innviðum til að auka verðmætasköpun. Þá á að hefja kraftmiklar framkvæmdir um land allt í samgöngum og rjúfa þá kyrrstöðu sem hefur verið í jarðgangagerð, helst á næsta ári. Svo er það samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins,“ segir hann.
Sundabraut fjármögnuð með veggjöldum
Eyjólfur segir eftir að taka ákvörðun um fjármögnun jarðganga en Sundabraut verði ekki á kostnað ríkissjóðs.
„Sundabraut er verkefni sem er fjármagnað með innheimtu veggjalda. Það er ekki inn í ríkisfjármálunum. Svo er það jarðgangagerðin, ég myndi vilja hafa fastan lið í fjárlögum fyrir jarðgangagerð. Þannig að það verði alltaf nægt fjármagn svo ein jarðgöng taki við að öðrum.
Aðspurður um hvar sé brýnasta þörfin fyrir jarðgöng svarar Eyjólfur.
„Það er á Vestfjörðum, Austfjörðum og Tröllaskaga en þetta á allt eftir að koma í ljós.“