Veður

Gular við­varanir fyrir norðan og vestan

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Vetur konungur virðist ætla að minna á sig á morgun. 
Vetur konungur virðist ætla að minna á sig á morgun.  Vísir/Vilhelm

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Breiðafirði, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra sem taka gildi eftir hádegi á morgun. 

Á vef Veðurstofunnar er spáð sunnan og suðvestan 15-23 m/s síðdegis á morgun og fram á kvöld á svæðunum þremur. Vindhviður geti náð yfir 35 m/s við fjöll. 

Aðstæðurnar séu varasamar fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. 

Viðvaranakort Veðurstofunnar klukkan fjögur á morgun.Veðurstofa Íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×