Um­fjöllun: Ís­land - Argentína 30-21 | Strákarnir okkar lifa í voninni

Sindri Sverrisson og Ingvi Þór Sæmundsson skrifa
Viktor Gísli Hallgrímsson hleypur til baka í markið og Ísland slapp við að fá á sig mark.
Viktor Gísli Hallgrímsson hleypur til baka í markið og Ísland slapp við að fá á sig mark. VÍSIR/VILHELM

Strákarnir okkar gerðu sitt í dag með því að vinna Argentínu í lokaleik sínum í milliriðlakeppni HM í handbolta. Nú þurfa þeir að treysta á hjálp frá Grænhöfðaeyjum eða Slóveníu til að komast áfram í 8-liða úrslit, en það er ljóst að þeir enda í versta falli í 9. sæti mótsins.

Íslenska þjóðin bíður nú í ofvæni eftir úrslitum í leik Grænhöfðaeyja og Egyptalands sem hefst klukkan 17, og Slóveníu og Króatíu sem hefst klukkan 19:30. Vonin er mun meiri í seinni leiknum og hafa Slóvenar lofað að leggja allt í sölurnar gegn grönnum sínum, í leik sem verður í beinni textalýsingu á Vísi.

Aron Pálmarsson og Óðinn Þór Ríkharðsson laufléttir þó að tapið gegn Króötum hafi enn setið í mönnum.VÍSIR/VILHELM

Það var alltaf ljóst að Ísland myndi vinna Argentínu í dag, getumunur liðanna er einfaldlega slíkur, en eftir afar hæga og klaufalega byrjun var Ísland fimm mörkum yfir í hálfleik, 15-10. Liðið vann svo níu marka sigur, 30-21.

Viktor Gísli Hallgrímsson var valinn maður leiksins en hann varði oft vel og samtals um helming skota sem hann fékk á sig í leiknum. 

Óðinn Þór Ríkharðsson varð markahæstur með sjö mörk úr átta skotum, eftir að hafa klikkað á fyrsta skoti sínu, en Gísli Þorgeir Kristjánsson, Viggó KRistjánsson Orri Freyr Þorkelsson komu næstir með fjögur mörk hver, og frábæra nýtingu.

Arnór Atlason aðstoðarþjálfari og hans menn á hliðarlínunni í dag.VÍSIR/VILHELM

Þó að margt bendi til þess að þetta hafi verið síðasti leikur Íslands á HM þá lifir vonin um leik í 8-liða úrslitum, og sá leikur er strax á þriðjudaginn. Því var mikilvægt fyrir Snorra að freista þess að veita mönnum hvíld eins og hentaði. Það gerði hann hiklaust.

Haukur, Aron og Viggó byrjuðu í útilínunni, Orri í vinstra horni og Ýmir á línunni. Skyttan Teitur Örn Einarsson hóf leik í hægra horni. Teitur hefur átt erfitt uppdráttar á mótinu og fá tækifæri fengið, og hann fór snemma í skammarkrókinn fyrir að skjóta í andlit Maciel í marki Argentínu.

Teitur Örn Einarsson fékk talsvert að spila í dag og skoraði þrjú mörk.VÍSIR/VILHELM

Ýmis fleiri mistök voru gerð á fyrstu mínútum leiksins og það gekk ansi hægt hjá Íslandi að komast yfir, jafnvel þó að Viktor Gísli byrjaði vel í markinu. Það tókst loks eftir átta mínútna leik þegar Óðinn skoraði úr hraðaupphlaupi, 3-2, en áfram héldu mistökin, Ýmir fékk kælingu og Argentína var 4-3 yfir eftir tíu mínútur.

Snorri skammaði menn snemma

Viktor Gísli kom Íslandi í 5-4 með skoti yfir allan völlinn en eftir glataða sendingu Hauks komst Argentína yfir á ný, 6-5, eftir korters leik.

„Þetta er hræðilegt!“ öskraði Snorri á sína menn þegar hann tók leikhlé, enda menn algjörlega af hálfum huga í leiknum og líkt og þeir héldu að sigurinn kæmi af sjálfu sér.

Gísli Þorgeir Kristjánsson átti góðan leik í dag.VÍSIR/VILHELM

Það var einhvern veginn dauft yfir öllu og vonleysið eftir tapið gegn Króötum á föstudag virtist fylgja inn í þennan leik. Og þó að Ísland kæmist yfir þá héldu menn áfram að gera kæruleysisleg mistök, líkt og staðráðnir í að spara bensínið eins og hægt væri. Það skipti bara ekki máli því Ísland er svo mikið betra lið en Argentína.

Gísli Þorgeir var einna líflegastur íslenska liðsins í fyrri hálfleik. Hann lyfti sér í loftið og kom Íslandi tveimur mörkum yfir í fyrsta sinn, 11-9, þegar sjö mínútur voru til hálfleiks. Þarna var Viktor Gísli búinn að loka markinu og Ísland náði í fyrsta sinn að skapa sér forskot með fjórum mörkum í röð, 13-9.

Ísland skoraði tvö síðustu mörkin fyrir hlé og var 15-10 yfir í hálfleik, þrátt fyrir að flestir væru í öðrum gír, og Viktor Gísli lauk fyrri hálfleik á enn einni markvörslunni en hann varði yfir helming skota Argentínumanna fyrri þrjátíu mínúturnar.

Gísli Þorgeir Kristjánsson átti góðan leik í dag.VÍSIR/VILHELM

Strákarnir okkar voru svo enn líkari sjálfum sér í upphafi seinni hálfleiks, skoruðu fyrstu fjögur mörkin og tóku af allan vafa um að sigurinn yrði Íslands með því að komast í 19-10.

Janus Daði skoraði þrjú mörk á skömmum tíma og Ísland hélt miklu forskoti, þó að Argentína gæfist ekkert upp. Teitur kom svo Íslandi í 23-13 með þrumuskoti.

Stiven Tobar Valencia lék sinn fyrsta leik á HM í dag.VÍSIR/VILHELM

Þegar korter var til leiksloka kom Stiven Valencia inn á í sínum fyrsta HM-leik. Þorsteinn Leó Gunnarsson, sem ýmsir hafa kallað eftir að spili meira á mótinu, kom inn með honum og var greinilega staðráðinn í að stimpla sig inn, en fór illa með fjórar sóknir á skömmum tíma.

Það breytti þó engu um það að Ísland næði að landa öruggum stórsigri og gera sitt. Nú er bara að treysta á Grænhöfðaeyjar og Slóveníu. Enn er von um að þessu heimsmeistaramóti sé ekki lokið hjá Íslandi.

Viðtöl, einkunnir og fleira er væntanlegt á Vísi og leikur Slóveníu og Króatíu verður í beinni textalýsingu í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira