Stefán Teitur kominn á blað
Stefán Teitur hóf leikinn á miðri miðju Preston og átti frábæran leik þær 60 mínútur sem hann spilaði. Hann kom sínum mönnum yfir á 28. mínútu eftir sendingu Milutin Osmajić. Staðan var 1-1 þegar Skagamaðurinn var tekinn af velli en Preston tókst að landa eins marks sigri, lokatölur 2-1 á Deepdale-vellinum í Preston.
😮💨#pnefc pic.twitter.com/4Erf2fUnl5
— Preston North End FC (@pnefc) January 25, 2025
Preston er með 37 stig í 14. sæti að loknum 29 leikjum. Sjö stigum á eftir Middlesbrough sem er í 6. sæti ensku B-deildarinnar en liðin í 3. til 6. sæti fara í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.
Guðlaugur Victor Pálsson átti fínan leik í miðverðinum hjá Plymouth Argyle sem náði 2-2 jafntefli á útivelli gegn Sunderland. Guðlaugur Victor og félagar eru í botnsæti deildarinnar með 22 stig.
Arnór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Blackburn Rovers sem mátti þola 2-1 tap gegn Bristol City. Arnór er að glíma við meiðsli á læri.
Jón Daði að njóta sín
Jón Daði stimplaði sig inn með krafti þegar hann hjálpaði Burton að vinna sinn fyrsta leik síðan í byrjun desember með marki gegn Wigan Athletic. Hann hélt uppteknum hætti í dag og skoraði tvívegis í fyrri hálfleik þegar Burton tók á móti Rotherham.
Some first period 🤩 #BAFC pic.twitter.com/4PAvpmwn8P
— Burton Albion FC (@burtonalbionfc) January 25, 2025
Gestirnir skoruðu strax í upphafi leiks en Jón Daði svaraði skömmu síðar og bætti þriðja marki heimamanna við undir lok fyrri hálfleiks. Segja má að Burton hafi gert út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks áður en Rotherham minnkaði muninn í 4-2.
Jón Daði var tekinn af velli á 87. mínútu og lauk leiknum með 4-2 sigri Burton sem er komið með 21 stig, sex stigum frá öruggu sæti.
A four-midable performance to give us the W 😍#BAFC pic.twitter.com/e8HPXmnQel
— Burton Albion FC (@burtonalbionfc) January 25, 2025
Benóný Breki Andrésson sat allan tímann á varamannabekk Stockport County sem vann 2-0 sigur á Crawley. Stockport er í 5. sæti með 44 stig að loknum 27 leikjum.
Jason Daði Svanþórsson spilaði rúma klukkustund þegar Grimsby tapaði 3-0 fyrir Barrow í ensku D-deildinni. Grimsby er í 9. sæti með 38 stig.