Hafrannsóknarstofnun tilkynnti í gær að mælingar bentu til þess að engin loðnukvóti yrði gefinn út veturinn 2024/2025. Rannsóknarskip stofnunarinnar hafa verið við mælingar síðustu rúmu vikuna og eru þær langt komnar.
Loðnuvinnslur má finna í níu bæjum á landinu. Einn þriðji kvótans er í eigu fyrirtækja í Vestmannaeyjum og segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, það mikið áfall ef engin loðna verður veidd þennan veturinn.
„Þetta mun hafa gríðarlega mikil áhrif á samfélagið hjá okkur hér, enda er einn þriðji loðnukvótans hjá fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. En þetta hefur líka mikil áhrif á þjóðarbúið í heild, og bara ekki góð tíðindi,“ segir Íris.

Miklir hagsmunir séu í húfi fyrir alla þjóðina, ekki bara sveitarfélögin með loðnuvinnslur.
„Ég bara vil trúa því að þetta sé ekki lokaniðurstaðan. Maður er ekki bjartsýnn eftir þessar fréttir en loðnan er mjög brellin og hún á það til að skjóta upp kollinum þegar síst varir. Þannig ég vil halda í vonina um að við getum fengið einhverja vertíð á verðmætasta tímanum, þegar hrognin eru í henni,“ segir Íris.
Ekkert grípi sveitarfélögin sem lenda í brestinum.
„Við missum af þessum tekjum og fólk í landi og sjómennirnir missa af því að fara að veiða loðnu, vinna loðnu og vinna hrognin. Það kemur ekkert í staðinn,“ segir Íris. „Það verður að tryggja það að Hafró sé gefinn kostur á að fara aftur í leit, því þetta eru svo mikil verðmæti sem eru undir. Leitin er bara dropi í hafið ef það finnst loðna.“