Handbolti

Frakk­land og Þýska­land í átta liða úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alfreð Gíslason er þjálfari Þýskalands.
Alfreð Gíslason er þjálfari Þýskalands. Getty/Marco Wolf

Frakkland og Þýskaland, lærisveinar Alfreðs Gíslasonar, eru komin í átta liða úrslit HM karla í handbolta. Frakkar fara þangað með fullt hús stiga líkt og Danir.

Þýskaland lagði Túnis með tólf mörkum í kvöld, lokatölur 31-19. Marko Grgić var markahæstur með 11 mörk.

Lærisveinar Alfreðs lenda því í 2. sæti milliriðils I og mæta liðinu sem vinnur milliriðil III. Verður það annað hvort Portúgal eða Spánn.

Frakkland vann Norður-Makedóníu með sjö mörkum í milliriðli II, lokatölur 32-25. Dika Mem var markahæstur hjá Frökkum með átta mörk en Frakkland hafði þegar tryggt sér sigur í milliriðlinum.

Frakkar mæta því liðinu sem lendir í 2. sæti í milliriðli Íslands. Sem stendur eiga strákarnir okkar ekki mikla möguleika en Króatía mætir Slóveníu og Egyptaland mætir Grænhöfðaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×