Fótbolti

Freyr óttast það versta eftir leiðinda­at­vik á æfingu Brann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Niklas Jensen Wassberg er norskur unglingalandsliðsmaður og sést hér í leik á móti Hollandi með nítján ára landsliðinu.
Niklas Jensen Wassberg er norskur unglingalandsliðsmaður og sést hér í leik á móti Hollandi með nítján ára landsliðinu. Getty/Soccrates/

Það voru ekki góðar fréttir sem komu af einni af fyrstu æfingum norska félagsins Brann undir stjórn Freys Alexanderssonar.

Einn efnilegasti leikmaður liðsins meiddist þá illa á hné. Niklas Jensen Wassberg er aðeins tvítugur en var á leiðinni til baka eftir að hafa meiðst á hné í apríl í fyrra.

Staðarblöðin Bergens Tidende og Bergensavisen greina frá því að óttast er að Wassberg hafi slitið aftur krossband.

Wassberg lenti ekki í samstuði en fann mikið til í hnénu eftir að hafa snúið sér. Hann haltraði af velli og fékk meðhöndlun.

Wassberg var þó ekki að meiðast á sama hné. Nú var það hægra hnéð en hafði verið það vinstra í apríl 2024.

„Þetta er ekki jákvætt því þetta lítur ekki vel út. Við vonum það besta en óttumst það versta,“ sagði Freyr Alexandersson við Bergens Tidende.

Freyr tók við norska liðinu á dögunum en Brann endaði í öðru sæti í norsku deildinni í fyrra og ætlar sér mikið á komandi leiktíð.

Niklas Jensen Wassberg spilar sem miðjumaður en hann er fæddur í júní 2004. Hann hafði leikið 28 leiki með Brann í efstu deild og 18 leiki með Brann í næstefstu deild fyrir tvítugsafmælið sitt.

Wassberg byrjaði fyrstu þrjá leiki Brann á síðustu leiktíð áður en hann meiddist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×