Rauðu djöflarnir áfram taplausir Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. janúar 2025 19:32 Kobbie Mainoo var allt í öllu hjá Manchester United í kvöld. EPA-EFE/ROBERT GHEMENT Manchester United lagði FCSB 2-0 þegar liðin mættust í Rúmeníu. Sigurinn gulltryggði sæti Rauðu djöflanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í knattspyrnu. Þrátt fyrir að enda í 3. sæti deildarkeppninnar eru lærisveinar Rúben Amorim eina taplausa liðið í keppninni. Þrátt fyrir að gestirnir frá Manchester væru meira með boltann og sköpuðu sér fleiri færi - þar á meðal fékk Kobbie Mainoo algjört dauðafæri - var staðan þó enn markalaus þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Alejandro Garnacho og Amad komu inn af bekknum í hálfleik og var sá argentíski næstum búin að skora tæpri mínútu eftir að síðari hálfleikur hófst. Leikmaður heimaliðsins átti þá slæma sendingu sem Garnacho komst inn í en skot hans endaði í stönginni. Þegar tæp klukkustund var liðin var komið að fyrirliðanum Bruno Fernandes að skjóta í marksúlurnar. Hann átti þá þrumuskot langt utan af velli sem small í slánni. Gestirnir pressuðu í kjölfarið og fengu innkast, það endaði með því að boltinn barst á Mainoo sem átti frábæra fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Diogo Dalot var einn á auðum sjá og kom Man Utd yfir. Það var svo Mainoo sjálfur sem tvöfaldaði forystu Rauðu djöflanna eftir að heimamenn höfðu átt skot í þverslánna. Markið kom á 68. mínútu og var Garnacho arkitektinn. Eftir það má segja að gestirnir hafi siglt sigrinum heim þó heimamenn hafi fengið færi til að minnka muninn. Þau voru hins vegar ekki nýtt og lokatölur 0-2 í Rúmeníu. Man United er komið í 16-liða úrslit á meðan FCSB fer í umspil um sæti í 16-liða úrslitum. Dregið verður í umspilið á morgun, föstudag. Drátturinn verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 2. Evrópudeild UEFA Fótbolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Körfubolti