Handbolti

Dagur og læri­sveinar hans í úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Dagur er kominn með lið sitt í úrslit.
Dagur er kominn með lið sitt í úrslit. EPA-EFE/ANTONIO BAT

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Króatíu eru komnir í úrslit HM karla í handbolta eftir frækinn sigur á Frökkum.

Króatía skoraði fyrsta mark leiksins og lagði þar með línurnar fyrir það sem var í vændum. Vissulega var leikurinn jafn framan af en eftir að skora fimm mörk gegn einu á fimm mínútna kafla fór staðan úr því að vera 5-4 Króatíu í vil í að vera 10-5 Króatíu í vil.

Munurinn var mestur orðinn níu mörk en Frakkar skoruðu síðustu tvö mörk fyrri hálfleiks og gáfu sér örþunnu líflínu fyrir síðari hálfleik leiksins, staðan í hálfleik 18-11 lærisveinum Dags í vil. Frakkar hófu síðari hálfleik af krafti, skoruðu þrjú mörk í röð og minnkuðu muninn niður í fjögur mörk.

Dika Mem gerði hvað hann gat í liði Frakklands.EPA-EFE/ANTONIO BAT

Þeim tókst þó ekki að halda áfram að saxa á forystu Króatíu og var munurinn í kringum fjögur eða fimm mörk þangað til stutt var til leiksloka og Frakkland náði að minnka muninn niður í þrjú mörk. 

Króatía fór hins vegar aldrei á taugum og hélt Frökkunum ávallt í hæfilegri fjarlægð. Fór það svo að Króatía vann þriggja marka sigur, 31-28, og er komið í úrslit.

Marin Jelinić og Zvonimir Srna voru markahæstir hjá Króatíu með sjö mörk hvor. Hjá Frakklandi var Dika Mem markahæstur með átta mörk.

Á morgun kemur í ljós hvort Danmörk - ríkjandi heimsmeistarar - eða Portúgal mæti Króatíu í úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×