Lífið

Sænsk sjón­varps­goðsögn látin

Atli Ísleifsson skrifar
Leif Olsson, betur þekktur sem „Loket“, eða Eimreiðin, stýrði þáttunum Bingólottó um margra ára skeið.
Leif Olsson, betur þekktur sem „Loket“, eða Eimreiðin, stýrði þáttunum Bingólottó um margra ára skeið. Wikipedia Commons

Sænski sjónvarpsmaðurinn Leif „Loket“ Olsson, sem þekktastur er fyrir að hafa stýrt sjónvarpsþáttunum Bingólottó um margra ára skeið, er látinn.

Sænskir fjölmiðlar greina frá andlátinu í morgun, en Olsson lést á hjúkrunarheimili í Gautaborg, 82 ára að aldri.

Í frétt SVT segir að Olsson hafi sótt hestamót í Gautaborg fyrr í vikunni, en að heilsu hans hafi síðan hrakað fljótt. Hann hafi svo andast fyrir hádegi í gær.

Olsson varð þjóðþekktur og einn vinsælasti sjónvarpsmaður Svíþjóðar á tíunda áratugnum þegar hann stýrði þáttunum Bingólottó frá 1989 til 1999, og svo aftur árið 2004. Sambærilegur þáttur var sýndur í íslensku sjónvarpi á Stöð 2 undir stjórn Ingva Hrafns Jónssonar.

Áður hafði hann starfað að gerð annarra þátta bæði í útvarpi og sjónvarpi og sem handboltadómari. Þannig dæmdi hann undanúrslitaleik í handbolta á Ólympíuleikunum í München árið 1972.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.