Íslensku dæturnar hafa komið Íslandi á CrossFit kortið síðustu áratugi og nú er það meðal annars á herðum ungrar stelpu frá Selfossi að halda uppi merki Íslands í íþróttinni á komandi árum.
Goðsagnirnar Anníe Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Sara Sigmundsdóttir voru í fyrsta sinn saman í liði á Wodapalooza í Miami og nutu hverrar stundar. Það höfðu líka rosalega margir að sjá þær saman í liði eftir að hafa keppt svo oft á móti hverri annarri á stærstu sviðum CrossFit íþróttarinnar.
Í keppninni í Miami keppti líka hin sautján ára gamla Bergrós Björnsdóttir. Bergrós er efnilegasta CrossFit kona Íslands og ein efnilegasta CrossFit kona heims.
Hún keppti á mótinu með liði sínu „LittleMcDottir Coming In Hotter“ og urðu þær í tólfta sæti eða fimm sætum ofar en lið íslensku goðsagnanna.
Bergrós keppti þar við hlið Reese Littlewood og Lucy Mcgonigle en þær hafa allar keppt á móti hverri annarri í unglingaflokki á heimsleikum síðustu ára.
Bergrós klikkaði auðvitað ekki á því að taka mynd af sér með íslensku goðsögnum þremur og hefur nú birt myndina á samfélagsmiðlum sínum.
„Þessa mynd þarf að ramma inn,“ segir Snorri Barón Jónsson, umboðsmaður Söru Sigmundsdóttur, í athugasemdum við myndina og það er hægt að taka undir það.
Bergrós sjálf var líka ánægð enda er hún geislandi af gleði á myndinni.
„Það var draumur að rætast hjá mér að fá að deila gólfinu með þessum þremur goðsögnum um síðustu helgi,“ skrifaði Bergrós og bætti við: „Litla ég hefði aldrei trúað þessu“.
