Veður

Vaktin: Aftakaverður gengur yfir landið

Samúel Karl Ólason skrifar
Þessi ökuþór á leiðinni í gegnum vatnselg á Völlunum en aðstæður minna frekar á þokkalega á á hálendinu.
Þessi ökuþór á leiðinni í gegnum vatnselg á Völlunum en aðstæður minna frekar á þokkalega á á hálendinu. Vísir/Vilhelm

Aftakaveður gengur yfir landið í dag. Rauðar og appelsínugular viðvaranir eru í gildi og er spáð hviðum upp í fimmtíu metra á sekúndu. Vísir fylgist með gangi mála í vaktinni og tekur við ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn(hja)visir.is.

  • Veðurstofan segir að á höfuðborgarsvæðinu megi búast við 28-33 metrum á sekúndu og að hættulegt gæti verið að vera á ferð utandyra milli klukkan fjögur og sjö.
  • Lægðin mætti fyrst á suðvestanvert landið upp úr hádegi og gengur nú yfir allt landið.
  • Appelsínugular og svo rauðar viðvarnir eru í gildi eða munu taka gildi um allt landið í dag. Varað er við talsverðri rigningu og mögulegu foktjóni.
  • Vegir víða um land eru á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara. Vegagerðin biður fólk um að fylgjast með aðstæðum og vera tilbúið til að breyta áætlunum sínum.
  • Miklar raskanir eru á flugi í dag, nær öllum flugferðum til og frá landinu eftir klukkan eitt hefur verið aflýst.

Hér að neðan má sjá beina útsendingu úr vefmyndavél Advania, sem sýnir Sæbrautina.

Fylgjast má með vendingum dagsins í vaktinni hér að neðan. Mögulega þarf að endurhlaða síðuna, sjáist vaktin ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×