Fótbolti

Lærir að synda kútalaus í djúpu lauginni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sölvi Geir mun stýra Víkingum í stórleik kvöldsins.
Sölvi Geir mun stýra Víkingum í stórleik kvöldsins. Vísir/Arnar

Sölva Geir Ottesen er hent út í djúpu laugina í sínu fyrsta verkefni sem þjálfari Víkings. Liðið mætir Panathinaikos frá Grikklandi í sögulegum leik í umspili Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Ekkert íslenskt lið hefur komist eins langt í Evrópukeppni og Víkingar. Um er að ræða fyrsta alvöru leik Sölva sem þjálfara Víkings en hann tók við af Arnari Gunnlaugssyni í vetur þegar sá síðarnefndi var ráðinn landsliðsþjálfari.

Hann ræðst því ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

„Þetta er stórt verkefni. Ég hef bara litið á þetta jákvætt, ég fæ risaverkefni í mínu fyrsta djobbi og mér finnst þetta lyfta mér hraðar á hærra stig. Mér er hent út í djúpu laugina, án kúta, og hef þurft að læra að synda mjög fljótt,“ segir Sölvi.

„Það er oft besta leiðin að sleppa hjálpardekkjunum að henda sér af stað. Ég lít bara á þetta sem jákvætt og spennandi. Þetta mun bara ýta mér ennþá hærra til að vera klár,“ bætir hann við.

Vonast eftir slyddu á „heimavellinum“

Panathinaikos frá Grikklandi er andstæðingur morgundagsins og telst leikurinn sem heimaleikur Víkings en fer þó fram í Helsinki í Finnlandi vegna þess að enginn völlur hérlendis uppfyllir skilyrði til að halda leikinn. Sölvi segir það ekki trufla menn.

„Ég hef eiginlega ekki hugsað út í það. Það var vitað fljótlega að við myndum spila heimaleikinn úti og fókusinn hefur verið á Panathinaikos og okkur og hvað við ætlum að gera. Við spáum bara í hluti sem við getum stjórnað og allt annað gengur sinn gang. Við erum bara einbeittir á þetta verkefni og lítum á þetta sem heimavöll okkar núna,“

„Þetta er mjög svipað, þetta er gervigras og þetta er á svipuðum slóðum á heimskringlunni, norðarlega með kulda. Vonandi fáum við smá slyddu í leiknum svo við fáum alvöru íslenskt veður og okkur líður enn meira eins og heima,“ segir Sölvi Geir.

Víkingur og Panathinaikos mætast klukkan 17:45 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×