Handbolti

Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martha Hermannsdóttir upplifði drauminn undir lok ferilsins sem var að vinna Íslands- og bikarmeistaratitil með KA/Þór.
Martha Hermannsdóttir upplifði drauminn undir lok ferilsins sem var að vinna Íslands- og bikarmeistaratitil með KA/Þór. Vísir/Daníel Þór

Það verður stór dagur í KA-heimilinu í dag þegar stelpurnar í KA/Þór taka á móti deildarmeistaratitlinum í Grill 66 deild kvenna í handbolta. Norðanmenn ætla nefnilega líka að heiðra mikla hetju í leiðinni.

KA/Þór mætir Víkingum í dag en Akureyrarliðið er búið að tryggja sig upp í Olís deildina þótt að enn séu þrjár umferðir eftir.

Liðið hefur ekki tapað leik og er með þrettán sigra í fimmtán leikjum. HSÍ er ekkert að bíða með að afhenta KA/Þór stelpunum bikarinn því þær eiga annan heimaleik eftir. Bikarinn fer á loft í dag.

Það verður vissulega fagnað þegar bikarinn fer á loft en örugglega líka þegar Martha Hermannsdóttir verður tekin inn í goðsagnarhöll handknattleiksdeildar KA. Hún er sú fyrsta í sögu KA/Þórs að vera tekin þar inn.

KA hefur tekið karla inn í höllina en nú verður Martha fyrsta konan. Í höllinni eru meðal annars þeir Guðjón Valur Sigurðsson, Patrekur Jóhannsson, Valdimar Grímsson, Arnór Atlason, Jóhannes Gunnar Bjarnason og Sverre Andreas Jakobsson.

Stærsta stund hennar Mörthu er án efa árið 2021 þegar hún varð Íslandsmeistari með KA/Þór, tók við bikarnum sem fyrirliði liðsins og var síðan valin valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar. Martha var frábær þennan betur þar sem KA/Þór vann alla titlana í boði þar á meðal bikarinn sem var spilaður um haustið vegna kórónuveirunnar.

Martha var þarna orðin 38 ára gömul en leiddi ungt lið til frábærs árangurs. Hún spilaði eitt ár í viðbót og tók þá þátt í Evrópukeppni með KA/Þór í fyrsta sinn.

Forráðamenn og leikmenn KA/Þórs vonast eftir góðri mætingu í KA-Heimilið en leikurinn hefst klukkan 15.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×