„Kerfið hefur ekki verið mjög burðugt fram til þessa“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 2. mars 2025 17:41 Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, bregst við skrifum Dagnýja Hængsdótturr Köhler, ömmu drengsins sem banaði Bryndísi Klöru Birgisdóttur á menningarnótt. Sigurjón/aðsend Allt of fá úrræði eru til staðar fyrir börn í miklum vanda að sögn umboðsmanns barna. Mikil bið er eftir þjónustu sem komi í veg fyrir að hægt sé að grípa inn í þegar vandinn kemur upp. Barnamálaráðherra tekur undir og boðar úrbætur.
Dagný Hængsdóttir Köhler, amma drengsins sem banaði Bryndísi Klöru Birgisdóttur á menningarnótt í fyrra og hjúkrunarfræðingur í geðþjónustu, tjáði sig um málið voðalega Í aðsendri grein á Vísi í gær. Í greininni gagnrýndi hún það kerfi sem er við lýði hér á landi þegar það kemur að því að grípa börn með áföll og sagði barnavernd hafa gripið of vægt inn í mál dóttursonar síns sem hafi búið við bagalegar uppeldisaðstöður. Þurfi að grípa fyrr inn í Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, tekur undir skrif Dagnýjar og segir mikilvægt að grípa börn sem hafa orðið fyrir áföllum. „Mig langar að byrja á því að votta aðstandendum Bryndísar Klöru mína dýpstu samúð en já ég er sammála því að það þurfi að grípa mun fyrr inn. Kerfið hefur ekki verið mjög burðugt fram til þessa og úrræði fyrir börn í vanda hafa ekki verið nægilega góð og það er eitthvað sem við þurfum að fara bæta. Við erum að vinna í þessum málum og þetta er það sem er í forgangi hjá mér sem barnamálaráðherra og hjá þessari ríkisstjórn það er farsæld barna.“ Ásthildur tekur jafnframt fram að það þurfi að grípa fyrr inn í og stytta biðlista til að minnka líkurnar á því að harmleikir sem þessir eigi sér stað. „Ég held að það þurfi að styrkja barnavernd og þau úrræði sem þau hafa til að grípa inn í, virkilega mikið. Börn þurfa að vera í forgangi og það þarf að grípa inn í eins fljótt og hægt er.“ Skortur á fjölbreytni í úrræðum Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að óháð þessu umrædda máli séu allt of fá úrræði til staðar fyrir börn í miklum vanda. Of mörg mál komi upp á ári hverju. „Við höfum líka verið að fylgjast með því reglubundið, þessari miklu bið eftir þjónustu. Bið fyrir börn á öllum aldri alveg lítil börn og það er bið eftir þjónustu sem er nauðsynleg og þessi bið kemur í veg fyrr að það se hægt að grípa í vandann þegar hann kemur upp.“ Mikilvægt sé að grípa inn í hjá börnum áður en vandinn vex um of. Hún tekur fram að ekki sé hægt að setja öll börn undir sama hatt í kerfinu. „Ég held að það þurfi að huga að margvíslegum hópi barna með fjölbreyttan vanda og það þarf fjölbreytt úrræði og það kannski skortir stundum fjölbreytni í úrræðum, að þú getir fengið þá sérhæfingu sem þau þurfa.“ Styðja þurfi enn frekar við barnaverndarþjónustu um allt land og setja börn í forgang.
Stunguárás við Skúlagötu Barnavernd Félagsmál Börn og uppeldi Fíkn Heilbrigðismál Fangelsismál Dómsmál Mest lesið Stór alda skall á óheppinn myndatökumann Innlent Hegseth fyrirskipar hlé á netaðgerðum gegn Rússum Erlent Lokuðu mann inni á meðan beðið var eftir lögreglu Innlent Þak flettist af húsi í Sandgerði Innlent Gjöf Gorbatsjovs til Davíðs Oddssonar seld á eina og hálfa milljón Innlent Bátur kastaðist upp á bryggju í hamfaraveðri í Sandgerði Innlent Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir er látin Innlent „Algjör gjörbreyting á alþjóðakerfinu“ Innlent Sjór, grjót og þari ganga yfir veginn um Kjalarnes Innlent Tvær bílveltur með stuttu millibili Innlent Fleiri fréttir Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir er látin Sóttu mann í ógöngum á Hólmatindi Lokuðu mann inni á meðan beðið var eftir lögreglu Þak flettist af húsi í Sandgerði Bátur kastaðist upp á bryggju í hamfaraveðri í Sandgerði Sjór, grjót og þari ganga yfir veginn um Kjalarnes Stór alda skall á óheppinn myndatökumann Gjöf Gorbatsjovs til Davíðs Oddssonar seld á eina og hálfa milljón „Algjör gjörbreyting á alþjóðakerfinu“ Ný og glæsileg lögreglustöð í Vík í Mýrdal Naumur sigur formanns, fundur Evópuleiðtoga og saursýni í kvöldfréttum Tvær bílveltur með stuttu millibili „Kerfið hefur ekki verið mjög burðugt fram til þessa“ „Ég lofa ykkur því að ég skal leggja mitt af mörkum“ Arndís Anna kjörin formaður Siðmenntar „Sigur er alltaf sigur“ Ósáttur við gjaldtöku yfir nýja Ölfusárbrú „Ótrúlegt“ að tapa með nítján atkvæðum Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins Holtavörðuheiðinni lokað Formannskjör Sjálfstæðisflokksins og fundur leiðtoga í Lundúnum Ný forysta Sjálfstæðisflokksins kjörin Landsfundur, alþjóðamál og Efling á Sprengisandi Kvikusöfnun heldur áfram Guðni stóð vaktina á Háskóladaginn Sagan skrýtna af nafngift Air Atlanta-flugfélagsins Flæddi í fleiri kjallara og grjót á víð og dreif á Seltjarnarnesi Nanna hneykslast á gervigreindarmyndum í nýjum þáttum RÚV Lögblindur prestur spilar snóker og bridds eins og ekkert sé Staðan snúnari eftir „fyrirsátur“ í Hvíta húsinu Sjá meira