Hákon tryggði Lille jafntefli á Westfalenstadion 4. mars 2025 21:56 Hákon Arnar Haraldsson fagnar hér marki sínu fyrir Lille í Meistaradeildinni í kvöld. AFP/INA FASSBENDER Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var hetja síns liðs í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Lille heimsótti þá Borussia Dortmund á Westfalenstadion í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Lokastaðan var 1-1 jafntefli og franska liðið því í fínum málum. Dortmund komst í 1-0 í fyrri hálfleik en Hákon jafnaði metin á 68. mínútu. Hákon fékk boltann frá Jonathan David og skoraði með skoti frá vítateigslínu. Flott mark en hann átti líka mjög góðan leik í kvöld. Hákon sýndi með þessari frammistöðu á stóra sviðinu hversu frábær leikmann við Íslendingar erum búnir að eignast. Karim Adeyemi hafði komið Dortmund yfir strax á 22. mínútu leiksins og mark Hákons því afar mikilvægt. Lille fær nú seinni leikinn á heimavelli sínum í næstu viku. Þetta var annað mark Hákons í Meistaradeildinni á þessu tímabili en hann hefur alls skorað sjö mörk í öllum keppnum. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla