Skoðun

Við kjósum Kol­brúnu!

Rannveig Klara Guðmundsdóttir og Gunnar Ásgrímsson skrifa

Innan fárra daga munu starfsfólk og stúdentar kjósa sér nýjan leiðtoga til næstu fimm ára. Fyrir okkur er valið augljóst og einfalt: Við munum kjósa Kolbrúnu Pálsdóttur. Kolbrún hefur sýnt í verki hvernig leiðtogi hún er innan Háskólans. Við höfum bæði starfað með henni í stjórn Menntavísindasviðs og séð leiðtogahæfni hennar í verki. Hún er öflugur leiðtogi sem hlustar á mann, tekur málin föstum tökum og leggur áherslu á að stúdentar og starfsfólk fái rödd. Kolbrún ræðir ekki einungis um breytingar, heldur finnur hún leiðir til að koma þeim í framkvæmd. Það sem við viljum vekja sérstaka athygli á er að hve mikill árangur hefur náðst undir forystu Kolbrúnar í því að efla kennaramenntun og fjölga brautskráðum kennurum.

Brautryðjandinn Kolbrún

Háskóli Íslands stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum næstu árin, við þurfum rektor sem skilur Háskólann og hefur þegar sýnt að hann ræður við að stýra honum í átt að bjartri framtíð.

Eitt af því sem einkennir Kolbrúnu er metnaður hennar fyrir því að Háskólinn nái árangri og það hefur nýst Menntavísindasviði ákaflega vel að hafa hana í forystu. Hún hefur ávallt stutt við og rutt veginn fyrir mikilvægum breytingum og nýjungum í kennaramenntun. Á meðal þess má nefna:

- Fagháskólanám í leikskólafræðum eflt og boðið á landsvísu.

- Raunfærnimat í leikskólakennaranámi innleitt 2021, gerir háskólanemum með starfsreynslu kleift að fá hæfni og þekkingu metna til háskólaeininga.

-Breytt kennslufyrirkomulag í leikskólakennaranámi í formi háskólamorgna til að auðvelda nám með starfi.

-Master of Teaching (MT), nýtt meistaranám án rannsóknartengds lokaverkefnis, í boði frá 2021.

-Íslenskubrú ætluð háskólanemum með annað heimamál en íslensku til að fjölga kennurum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Þá átti Kolbrún ríkan þátt í því að jafnréttis- og kynjafræðsla hefur verið fest í sessi í öllum deildum sviðsins.

Háskóli Íslands þarf leiðtoga sem kemur breytingum í framkvæmd

Við treystum Kolbrúnu því við vitum hvað hún stendur fyrir. Hún vinnur ekki í tómarúmi heldur hlustar hún á fólkið í kringum sig og tekur mið af þeirra ólíku sjónarmiðum og skoðunum. Háskóli Íslands þarf leiðtoga sem nýtir sér kraft fjöldans og lætur hlutina gerist.

Kolbrún hefur sýnt að hún er hefur áræði til að hrinda breytingum í framkvæmd, hugmyndaflug til að búa til nýjar lausnir og tryggja að þær skili árangri. Háskólinn þarf rektor sem sér tækifærin og nýtir sér þau. Þess vegna ætlum við að kjósa hana og við hvetjum ykkur til að gera slíkt hið sama.

Höfundar eru annars vegar kennaranemi og fyrrum meðlimur sviðsráðs Menntavísindasviðs og hins vegar kennaranemi og formaður sviðsráðs Menntavísindasviðs




Skoðun

Sjá meira


×