Innlent

Tekið á móti nýju hafrannsóknaskipi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þórunn Þórðardóttir HF-300 í höfn í dag.
Þórunn Þórðardóttir HF-300 í höfn í dag. Vísir/Bjarni

Tekið var á móti Þórunni Þórðardóttur HF 300, nýju hafrannsóknaskipi, í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í dag. Skipið tekur við af hinum dygga Bjarna Sæmundssyni og heitir í höfuðið á einum helsta svifþörungafræðingi landsins.

Móttakan fór fram að Fornbúðum 5 í Hafnarfirði klukkan 14 í dag. Meðal viðstaddra voru Hanna Katrín Friðriksson sjávarútvegsráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra auk fjölda fólks úr sjávarútvegi.

Skipið var afhent í Vigo á Spáni föstudaginn 21. febrúar, tæpum þremur árum eftir að samningur milli íslenska ríkisins og spænsku skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armon um smíði skipsins var undirritaður. 

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, undirrituðu samninginn fyrir hönd ríkisins.

Í tilkynningu á vef Hafrannsóknunarstofnunar frá 27. febrúar kom fram að lagt hefði verið úr höfn frá Vigo 25. febrúar og gert ráð fyrir að heimsiglingin tæki um fimm daga.

Taka átti á móti Þórunni klukkan 14 þann 7. mars síðastliðinn en frestaðist það. Ástæðan var að skipið þurfti að snúa við á heimsiglingu til að koma áhafnarmeðlimi undir læknishendur vegna handleggsbrots.

Heitir í höfuðið á helsta svifþörungafræðingi landsins

Þórunn Þórðardóttir HF 300 tekur við af Bjarna Sæmundssyni sem hefur sinnt hafrannsóknum allt frá árinu 1970. Gengið var nýlega frá sölu á Bjarna til Holberg Shipping í Noregi og verður hann afhentur nýjum eigendum á laugardag eftir 54 ára þjónustu.

Nýja skipið er nefnt í höfuðið á frumkvöðli rannsókna á frumframleiðni í hafinu og einum helsta svifþörungafræðingi landsins, Þórunni Þórðardóttur (1925 - 2007). 

Þórunn hóf störf hjá Hafrannsóknastofnun, sem þá hét Atvinnudeild Háskóla Íslands, fiskideild. Hún vann mestallan sinn starfsaldur sem deildarstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, þar sem hún bæði hóf og stýrði íslenskum svifþörungarannsóknum um 40 ára skeið.

Módel af nýja skipinu.Vísir/Bjarni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×