Innlent

Leigubílamarkaðurinn sé eins og „villta vestrið“

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vill koma skikk á leigubílamarkaðinn.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vill koma skikk á leigubílamarkaðinn. Vísir/Sigurjón

Innviðaráðherra segir leigubílamarkaðinn hafa verið eins og „villta vestrið“ hingað til en nú standi til að gera viðamiklar breytingar. Hann hefur lagt fram frumvarp í samráðsgátt um breytingar á starfsemi leigubílstjóra sem felur meðal annars í sér að innleiða stöðvarskyldu að nýju.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist gera ráð fyrir að frumvarpið njóti stuðnings mikils meirihluta þingsins en auk stöðvarskyldunnar mun það innleiða rafræna skrá þar sem upplýsingar um allar ferðir verða skráðar. Upphaf, endastöð, akstursleið og greiðslur verða skráðar en Eyjólfur segir mýmörg dæmi um alvarleg afbrot vegna skorts á eftirliti.

„Þetta er búið að vera hálfgert villt vestur núna. Þú gast verið einn á stöð, gast verið með stöðina í öskubakkanum hjá þér og verið bara einn að harka. En núna verður aukin ábyrgð á stöðvunum,“ segir Eyjólfur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Svindlað á prófum

Hann segir gögnin verða varðveitt í minnst sextíu daga og að svo verði gerð árleg úttekt á gagnakerfunum. Þetta eigi að tryggja bætta starfshætti og aukið eftirlit með atvinnugreininni. Þá verði aðrir þættir teknir út þegar líður á kjörtímabilið og nefnir Eyjólfur leyfisveitingar sérstaklega í því samhengi.

Próf sem lögð eru fram til leyfisveitinga hafa verið á íslensku hingað til en Eyjólfur segir að algengt hafi verið að svindlað væri á prófunum og því þurfi að taka á.

„Það voru einstaklingar að taka próf sem voru hálfgert svindl jafnvel. Það er krafa bæði í Danmörku og Noregi að þá eru prófin tekin á dönsku og norsku, skýr krafa. Við þurfum að hafa það alveg skýrt í íslensku lögunum,“ segir hann.

Afnám gjaldmælaskyldunnar valdi ósanngjarnri verðlagningu

Eyjólfur segir að skortur á eftirliti hafi stofnað farþegum í hættu og að afnám gjaldmælaskyldu hafi skapað rými fyrir ósanngjarna verðlagningu og þá sérstaklega gagnvart ferðamönnum. Hann segir að það sem hann varaði við þegar ný lög um leigubílaakstur voru samþykkt árið 2022 hafi raungerst.

„Við Inga Sæland tókum þátt í umræðum um þetta í þinginu, ég man svo vel þetta var að kvöldi til og bílstjórarnir voru að flauta eins og enginn væri morgundagurinn langt fram á kvöld og það er akkúrat að rætast allt sem við sögðum,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×