Fótbolti

Efni­legur táningur lést og fjöl­skyldan krefst svara

Sindri Sverrisson skrifar
Guo Jiaxuan var í heimshópi Bayern München enda efnilegur miðvörður. Hann slasaðist á höfði í leik á Spáni í síðasta mánuði og er nú látinn.
Guo Jiaxuan var í heimshópi Bayern München enda efnilegur miðvörður. Hann slasaðist á höfði í leik á Spáni í síðasta mánuði og er nú látinn. Samsett/FC Bayern/Twitter

Bayern München syrgir hinn unga leikmann Guo Jiaxuan sem hefur verið úrskurðaður látinn, eftir höfuðhögg sem hann hlaut í fótboltaleik. Fjölskylda hans krefst skýringa og réttlætis.

Guo var efnilegur miðvörður sem hefði fagnað 19 ára afmæli í dag en hann lést í gær í heimalandi sínu, Kína. Hann var leikmaður Beijing Guoan en einnig hluti af sérstökum heimshópi Bayern árið 2023, þar sem efnilegir leikmenn fá tækifæri til að sýna sig og sanna, auk þess að spila fyrir yngri landslið Kína.

Guo hafði verið í dái síðan hann meiddist á höfði í æfingaleik á Spáni þann 6. febrúar, þegar U20-lið Beijing spilaði við spænska liðið RC Alcobendas í Madrid. Hann var úrskurðaður heiladauður á sjúkrahúsi í Madrid og svo fluttur á sjúkrahús í Peking.

„Við misstum barn sem elskaði fótbolta. Megi Jiaxuan hvíla í friði,“ segir í tilkynningu Beijing Guoan. „Félagið mun halda áfram að gera sitt besta til að takast á við eftirmálana og útvega alla þá hjálp og stuðning sem hægt er til fjölskyldu Guo Jiaxuan,“ skrifar félagið.

Eins og fyrr segir þá hefur fjölskylda Guo kallað eftir upplýsingum um það hvað nákvæmlega gerðist og dró þennan unga fótboltamann til dauða. Fjölskyldan sakar knattspyrnusambandið í Peking um að leyna upplýsingum og vill fá myndefni frá leiknum og upplýsingar um þá sjúkrameðferð sem Guo fékk áður en hann fór á sjúkrahúsið.

„Við viljum bara vita sannleikann og fá fram réttlæti,“ skrifaði bróðir Guo á samfélagsmiðla.

Knattspyrnusambandið í Peking tilkynnti svo í dag að það hefði aflað myndefnis frá leiknum og að nú væru sérfræðingar að greina það. Sambandið hefði ekki viljað greina viðstöðulaust frá öllum upplýsingum af ótta við að óviðkomandi aðilar fengju þær í hendurnar. Mikilvægt væri að taka tillit til tilfinninga fjölskyldumeðlima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×