Viðskipti innlent

Eyjólfur Árni hættir hjá SA

Atli Ísleifsson skrifar
Eyjólfur Árni Rafnsson.
Eyjólfur Árni Rafnsson. Vísir/Vilhelm

Eyjólfur Árni Rafnsson verður ekki í framboði til formanns á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer 15. maí næstkomandi. Eyjólfur Árni hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins frá vorinu 2017.

Frá þessu segir á vef SA. Þar kemur fram að Eyjólfur Árni skilji við samtökin í góðu horfi, langtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði séu í gildi, stefna og sýn samtakanna hafi verið endurmörkuð ásamt stjórnskipulagi og fjárhagsleg staða samtakanna sé sterk. 

„Eyjólfur leiddi samtökin í gegnum þrjár kjarasamningslotur sem allar hafa sett sitt mark á íslenskan vinnumarkað, nú síðast Stöðugleikasamningana sem mörkuðu vatnaskil hvað varðar efnahagslegan stöðugleika, baráttuna við verðbólgu og lækkun vaxta. Samtök atvinnulífsins og forveri þeirra, Vinnuveitendasamband Íslands, eiga sögu sína að rekja allt aftur til ársins 1934 en samtökin hafa alltaf verið málsvari íslensks atvinnulífs gagnvart stjórnvöldum og stéttarfélögum auk þess að vera í forystu um samkeppnishæft rekstrarumhverfi og eiga þannig lykilþátt í því að skapa hagsæld á Íslandi. Eyjólfur leiddi samtökin eftir þeim gildum á starfstíma sínum og hann lagði enn fremur sérstaka áherslu á að efla hagsmunagæslu íslensks atvinnulífs á alþjóðlegum vettvangi og hefur verið virkur þátttakandi í starfi á vettvangi systursamtaka Samtaka atvinnulífsins í Evrópu og á Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Eyjólfi Árna að hann vilji þakka öllum þeim sem hann hafi starfað með á vettvangi SA, stjórnarfólki og starfsfólki samtakanna og aðildarfélögum fyrir traustið síðustu átta ár. „Einnig vil ég þakka forsvarsfólki stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði fyrir traust og gefandi samstarf á undanförnum árum. Vissulega greinir okkur oft á en markmiðin eru í stóru myndinni sameiginleg, að treysta og bæta hag fólks en jafnframt standa vörð um öflugt atvinnulíf og stöðugt efnahagsumhverfi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×