Fótbolti

Arnór fyrsta nafn á eftir­sóknar­verðum lista

Aron Guðmundsson skrifar
Arnór Sigurðsson er mættur aftur til Svíþjóðar en nú með Malmö.
Arnór Sigurðsson er mættur aftur til Svíþjóðar en nú með Malmö. Malmö FF

Arnór Sigurðsson er talinn vera besti nýliðinn í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta fyrir komandi tímabil en tveir Íslendingar verma sæti á topp tíu sætum listans. 

Það er sænski miðilinn Fotbollskanalen sem hefur tekið saman listann en Arnór gekk til liðs við Malmö í síðasta mánuði eftir að hafa losað sig undan samningi hjá enska B-deildar liðinu Blackburn Rovers. Arnór þekkir vel til í sænsku úrvalsdeildinni eftir tíma hjá Norrköping fyrr á sínum ferli og til mikils er ætlast af honum.

„Án efa algjör klassa leikmaður fyrir sænsku úrvalsdeildina,“ segir meðal annars í umsögn Fotbollskanalen sem telur Arnór vera besta nýliðann í sænsku úrvalsdeildinni. „Arnór hefur áður sýnt hvernig hann getur svifið um völlinn og verið nær óstöðvandi. Íslendingurinn mun krydda upp á nú þegar sterka sókn Malmö.“

Júlíus Magnússon í treyju ElfsborgMynd: Elfsborg

Arnór er ekki eini Íslendingur á topp tíu sætum listans því miðjumaðurinn Júlíus Magnússon, sem gekk til liðs við Elfsborg frá Fredrikstad er þar einnig. Júlíus var fyrirliði Frederikstad á síðasta tímabili og leiddi liðið til sigurs í norska bikarnum og er talinn vera í áttunda sæti yfir bestu nýliða sænsku úrvalsdeildarinnar.

„Íslenski landsliðsmaðurinn var fyrirliði Fredrikstad og stóð sig með prýði í norsku úrvalsdeildinni. Margt bendir til þess að þessi 26 ára gamli leikmaður, sem hættir aldrei að hlaupa, muni nýtast Elfsborg mjög vel.“

Sænska úrvalsdeildin fer af stað um helgina. Malmö og Arnór heimsækja Djurgården á morgun á meðan að Elfsborg tekur á móti Mjällby AIF. 

Nú er það þeirra Arnórs og Júlíusar að sýna að þeir eigi heima á þessum lista Fotbollskanalen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×