Hjörtur lék allan leikinn og hélt hreinu í 0-1 útisigri hjá sínu liði Volos gegn Kallithea, í fyrstu umferð neðri hlutans eftir að grísku úrvalsdeildinni var skipt upp.
Hlynur var í byrjunarliðinu og spilaði áttatíu mínútur í 2-0 tapi Brommapojkarna gegn Hacken í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.
Miðverðirnir voru hvorugir kallaðir inn í landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Kósovó á dögunum, þrátt fyrir að liðið væri mjög þunnskipað í þeirri stöðu. Hlynur spilaði samt með u21 árs landsliðinu.
Þeirra í stað voru náttúrulegir miðjumenn, Aron Einar Gunnarsson og Stefán Teitur Þórðarson, látnir leysa miðvarðarstöðuna. Miðjumaður var einnig látinn leysa vinstri bakvarðarstöðuna. Með afleitum árangri.
„Ég held að [Arnar landsliðsþjálfari] þurfi að horfa núna í það að mögulega er kominn tími á nýja leikmenn, eins og Hlynur Freyr og þessir strákar í U-21, og leikmaður eins og Hjörtur“ sagði knattspyrnusérfræðingurinn Albert Brynjar.
Lárus Orri Stefánsson tók undir með honum og benti sérstaklega á það sem mistök að Arnar skyldi stilla upp miðjumönnunum Stefáni Teiti Þórðarsyni og Ísaki Bergmann Jóhannessyni sem varnarmönnum.
Spennandi verður að fylgjast með hvort Hjörtur og Hlynur haldi áfram að spila með sínum félagsliðum, og fái þá mögulega kallið inn í næsta landsliðshóp, sem mun koma saman fyrir æfingaleiki gegn Skotlandi og N-Írlandi í byrjun júní.