Fótbolti

Líf­vörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“

Sindri Sverrisson skrifar
Yassine Cheuko fer yfir málin með Antonela Roccuzzo, eiginkonu Messi, á leik Inter Miami. Lífvörðurinn hefur sagt að sér líði eins og einum af fjölskyldunni og að hann finni fyrir miklu trausti frá Messi.
Yassine Cheuko fer yfir málin með Antonela Roccuzzo, eiginkonu Messi, á leik Inter Miami. Lífvörðurinn hefur sagt að sér líði eins og einum af fjölskyldunni og að hann finni fyrir miklu trausti frá Messi. Getty/Megan Briggs

Yassine Cheuko, hinn grjótharði lífvörður Lionels Messi, má ekki lengur passa upp á hann á leikjum í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta.

Frá því að Messi kom til Bandaríkjanna og hóf að spila fyrir Inter Miami árið 2023 þá hefur Cheuko verið til taks á öllum leikjum, tilbúinn að tækla fólk sem hleypur inn á völlinn til að komast í tæri við mögulega besta leikmann sögunnar.

@espn He took off 😳 (via @Major League Soccer on Apple TV) #messi #futbol #soccer ♬ original sound - ESPN

Þannig hefur Cheuko reglulega komist í fréttirnar fyrir að góma fólk sem ætlar að ná til Messi í miðjum leik en svoleiðis verður það ekki áfram.

Cheuko greinir nefnilega frá því í þættinum House of Highlights að MLS-deildin sé búin að taka fyrir það að hann megi vera við völlinn og hlaupa inn á.

„Þeir leyfa ekki lengur að ég sé á vellinum,“ segir Cheuko sem telur það augljós mistök vegna þess hve margir virðist sífellt ná að finna sér leið inn á völlinn.

„Þetta er risavandamál hérna“

„Ég vann í sjö ár í frönsku deildinni og Meistaradeild Evrópu og í heild ruddust sex manns inn á völlinn. Eftir að ég kom til Bandaríkjanna, á tuttugu mánuðum, hafa nú þegar sextán manns komist inn á völlinn. Þetta er risavandamál hérna. Ég er ekki vandamálið. Leyfið mér að hjálpa Messi,“ segir Cheuko.

„Ég elska MLS og CONCACAF en við verðum að vinna saman. Ég elska að hjálpa. Ég tel mig ekki betri en aðra en ég er með afar mikla reynslu úr Evrópu. En þetta er í lagi. Þeirra ákvörðun en ég held að við gætum gert betur,“ segir Cheuko.

Eftir að hafa verið að glíma við meiðsli sneri Messi aftur til leiks í síðasta leik Inter Miami og skoraði þá í 2-1 sigri gegn Philadelphia Union eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann gæti spilað í 8-liða úrslitum CONCACAF Champions Cup á morgun, gegn LAFC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×