„Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Smári Jökull Jónsson skrifar 6. apríl 2025 23:00 Roy Keane hafði ýmislegt að segja um sitt fyrrum félag, líkt og svo oft áður. Vísir/Getty Fyrrum fyrirliði Manchester United sagði eftir jafntefli liðsins gegn Manchester City í dag að liðið væri enn ekki nægilega gott. United var betra liðið í leiknum í dag og fékk fleiri færi til að skora.
Leikur Manchester City og Manchester United í dag var fremur tíðindalítill þó einhver færi hafi litið dagsins ljós. Alejandro Garnacho fékk gott færi í fyrri hálfleiknum og þá komst Phil Foden í fína stöðu í þeim síðari en tókst ekki að skora. Roy Keane, fyrrum fyrirliði United og nú sparkspekingur hjá Skysports, er ekki ánægður með það sem hann hefur séð hjá United og segir liðið enn ekki nægilega gott undir stjórn Ruben Amorim sem tók við liðinu eftir að tímabilið var hafið. „Ég veit að United vann Leicester og Real Sociedad. En maður horfir á síðustu leiki og hugsar: Þetta er ekki nægilega gott, þetta er ekki nægilega gott,“ sagði Keane eftir leikinn í dag. „Gleymið United liðunum sem ég spilaði með, gleymið þremur eða fjórum efstu liðunum. Að keppa gegn Brentford, Crystal Palace, Fulham og Wolves? Eruð þið að segja mér að United ætti að vera á eftir þessum liðum?“ „Meirihluti leikmannanna ættu að vera að gera betur en liðin sem ég taldi upp.“ „Hafðu viljann til að grafa djúpt og ná í úrslit!“ XG tölfræði United í leiknum var 0,92 en liðið vantaði drápseðlið í vítateignum. Alejandro Garnacho fékk besta færið en Manuel Ugarte og Joshua Zirkzee komust líka nálægt því að skora í síðari hálfleiknum. Zirkzee kom inn fyrir Rasmus Höjlund í síðari hálfleik en sá danski náði aðeins fimmtán snertingum á boltann í leiknum. „United á að geta ógnað meira fyrir framan markið. Þessir tveir framherjar sem liðið er með eru ekki nógu góðir fyrir Manchester United en það eru aðrir leikmenn í liðinu. Það eru kantmenn, varnarmenn geta skorað og svo föst leikatriði.“ „Í markinu sem þeir fengu á sig gegn Nottingham Forest var leikmaður andstæðinganna sem hljóp tugi metra. Þú getur sagt að þetta sé frábært hlaup og frábært mark, en það verður einhver að tækla hann. Hafðu viljann til að grafa djúpt og ná í úrslit.“ Nefndi Solskjær sem gott fordæmi Keane kallar eftir meiru frá knattspyrnustjóranum Ruben Amorim og starfsliðinu. „Þetta verður að koma frá knattspyrnustjóranum og starfsliðinu, frá leiðtogunum sem þeir eru með í búningsherberginu. Ég er ekki að segja að allir þurfi að vera þannig, en það eru reyndir leikmenn þarna. Maguire, Casemiro, Fernandes - eru þeir að ná til þessara leikmanna?“ „Ole Gunnar Solskjær hljóp einu sinni allan völlinn til að elta einhvern og fá rautt spjald. Það voru færðar fórnir fyrir liðið. Fórnirnar fyrir framherjana gætu verið að taka hlaup, búa til góðan bolta úr slæmum. “ Keane sagðist vonast til að geta dregið í land á næsta ári ef United myndi standa sig vel. Hann býst hins vegar ekki við að það gerist. „Ég vildi að ég hefði rangt fyrir mér og að United endi í topp fimm eða sex á næsta tímabili, að ég þyrfti að taka allt til baka. En ég sé það ekki.“ „Ég hef horft á nokkra leiki að undanförnu. Ég sá leikinn gegn Forest, ég sparkaði tebollanu mínum niður. Þeir voru flottir og fínir en þeir voru aldrei að skora. Ekkert mark heldur í dag. Þegar þú ert að spila fyrir stórt félag og færð stóra samninga þá ertu með þá ábyrgð að vinna knattspyrnuleiki.“
Enski boltinn Mest lesið „Hér er allt mögulegt“ Fótbolti Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Fótbolti Dramatík á Hlíðarenda Handbolti Lagði egóið til hliðar fyrir liðið Körfubolti „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport Van Dijk fær 68 milljónir á viku Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Íslenski boltinn Olga ætlar ekki í slag við Willum Sport Eygló Fanndal Evrópumeistari Sport Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Sport Fleiri fréttir Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Newcastle upp í þriðja sætið Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Van Dijk býst við mjög viðburðaríku sumri hjá Liverpool Chelsea eyddi tíu milljörðum í umboðsmenn Lélegasta lið Man United frá upphafi ensku úrvalsdeildarinnar Þjálfari Newcastle að jafna sig eftir lungnabólgu Rory vill veita leikmönnum Man United innblástur Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik „Einbeitum okkur að fimmtudeginum“ Slæmur dagur hjá Rauðu djöflunum á St. James Park Náðu ekki tveimur titlum á tveimur dögum Sancho bjargaði andliti Chelsea gegn Ipswich Van Dijk skoraði undir lokin og Liverpool með níu fingur á bikarnum Fjórði sigur Úlfanna í röð Enginn komið að fleiri mörkum á 38 leikja tímabili en Salah Hörð keppni um Delap í sumar Onana ekki með gegn Newcastle „Hann hefði getað fótbrotið mig“ Howe lagður inn á spítala og missir af leiknum Skytturnar skildu jafnar við Býflugurnar Jason skoraði í svekkjandi jafntefli Dramatík í Nottingham, Leicester fékk loks stig og Asensio klúðraði tveimur vítum Vonir Plymouth glæðast og Leeds á toppinn Ótrúleg endurkoma hjá City í sjö marka leik Amorim íhugar að henda Onana á bekkinn Grealish og Foden líður ekki vel Sjá meira