Albert og fé­lagar misstigu sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Albert Guðmundsson skýlir boltanum í leiknum gegn Parma.
Albert Guðmundsson skýlir boltanum í leiknum gegn Parma. getty/Andrea Martini

Fiorentina missteig sig í baráttunni um Meistaradeildarsæti þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Parma á heimavelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina og lék fyrstu 77 mínútur leiksins. Hann hefur komið við sögu í tuttugu deildarleikjum á tímabilinu og skorað sex mörk.

Leikurinn var frekar bragðdaufur og fá opin færi litu dagsins ljós. Markverðir liðanna áttu nokkuð náðugan dag og héldu þegar uppi var staðið báðir hreinu.

Fiorentina, sem hefur gert tvö jafntefli í röð, er í 8. sæti deildarinnar með 53 stig, sex stigum frá Meistaradeildarsæti.

Parma hefur aftur á móti gert fimm jafntefli í röð. Liðið er í 16. sæti með 28 stig, fjórum stigum frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira