Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mohamed Salah fagnaði marki sínu með einni laufléttri sjálfu á síma heppins stuðningsmanns.
Mohamed Salah fagnaði marki sínu með einni laufléttri sjálfu á síma heppins stuðningsmanns. Carl Recine/Getty Images

Liverpool er Englandsmeistari í knattspyrnu eftir afar sannfærandi 5-1 sigur gegn Tottenham á Anfield í dag.

Liverpool hafði tólf stiga forskot á toppi deildarinnar fyrir leik dagsins og þar sem Arsenal, sem situr í öðru sæti, getur aðeins nælt sér í tólf stig í viðbót var ljóst að jafntefli myndi duga heimamönnum gegn Tottenham í dag.

Það var því mikið undir fyrir þá rauðklæddu á heimavelli í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og liðið lenti í örlitlu brasi snemma leiks þegar Dominic Solanke skallaði fyrirgjöf James Maddison í netið og kom Tottenham yfir strax á 12. mínútu.

Heimamenn voru hins vegar ekki lengi að hrista vandræðin af sér. Luis Diaz jafnaði metin fyrir Liverpool strax á 16. mínútu áður en Alexis Mac Allister kom liðinu yfir með þrumuskoti aðeins átta mínútum síðar.

Cody Gakpo sá svo til þess að Liverpool fór með 3-1 forystu inn í hálfleikinn með marki á 34. mínútu. 

Heimamenn héldu áfram að hamra járnið meðan það var heitt í seinni hálfleik. Mohamed Salah  bætti fjórða marki Liverpool við á 63. mínútu og sex mínútum síðar varð Destiny Udogie fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Heimamenn létu fimm mörk duga, enda var það miklu meira en nóg. Niðurstaðan varð öruggur 5-1 sigur Liverpool og Englandsmeistaratitillinn tryggður. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira