Enski boltinn

Trans konum bannað að spila í kvenna­flokki á Bret­landi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Enska knattspyrnusambandið hefur breytt reglum sínum varðandi trans konur.
Enska knattspyrnusambandið hefur breytt reglum sínum varðandi trans konur. getty/Eddie Keogh

Enska knattspyrnusambandið hefur greint frá því að frá og með 1. júní verði trans konum óheimilt að spila í kvennaflokki.

Þann 11. apríl breytti enska knattspyrnusambandið reglum fyrir trans konur sem vildu spila í kvennaflokki. Þær máttu halda áfram að spila ef þær uppfylltu ákveðin skilyrði, til dæmis varðandi magn testósteróns í líkamanum. Þá þurftu þær að leggja fram gögn um hormónameðferð. 

En eftir úrskurð hæstaréttar Bretlands um trans konur breytti enska knattspyrnusambandið reglum sínum á ný. Samkvæmt hæstarétti Bretlands eru kynin aðeins tvö í skilningi jafnréttislaga og gengið er út frá „líffræðilegu“ kyni fólks.

„Þetta er flókið mál og okkar staða hefur alltaf verið sú að ef það verða breytingar á lögum, vísindum eða hvernig stefnunni er framfylgt í grasrótarfótboltanum myndum við skoða það og breyta ef þess þyrfti,“ segir í yfirlýsingu frá enska knattspyrnusambandinu.

„Við erum meðvituð um að þetta verður erfitt fyrir fólk sem vill einfaldlega spila leikinn sem það elskar í því kyni sem það skilgreinir sig. Við ætlum að setja okkur í samband við trans konurnar sem eru að spila til að útskýra breytingarnar og fara yfir hvernig þær geta haldið áfram að vera hluti af leiknum.“

Í síðasta mánuði greindi enska knattspyrnusambandið frá því að tuttugu trans konur væru í hópi þeirra milljóna áhugamanna sem spila fótbolta á Bretlandi. Engin trans kona er í atvinnumannadeildunum á Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×