Körfubolti

„Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hörður er stoðsendingahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar.
Hörður er stoðsendingahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar. vísir / diego

Hörður Axel Vilhjálmsson er hættur í körfubolta. Álftanes féll úr leik í úrslitakeppninni gegn Tindastóli í kvöld og Hörður tilkynnti eftir leik að skórnir væru á leið upp á hillu.

„Auðvitað hefði ég viljað enda ferilinn á sigurleik. Ég er svekktur eins og staðan er núna, að tapa þessum leik, en svo eftir nokkra daga fer maður að líta til baka á það sem maður hefur áorkað. Þá kannski lítur maður til baka með stolti, eða ekki, ég veit það ekki. Ég veit bara að þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ sagði Hörður í viðtali við Andra Má Eggertsson á Stöð 2 Sport eftir leik. 

Álftanes tapaði með fimmtán stigum og Stólarnir komust áfram í úrslit. 

Tindastóll sendi Álftanes í sumarfrí, og lauk ferli Harðar, í kvöld.vísir / diego

Hörður hefur verið einn besti leikstjórnandi landsins um árabil. Hann gekk til liðs við Álftanes þegar liðið komst upp í úrvalsdeild fyrir tveimur árum.

Á þeim tíma hefur hann farið með liðinu í átta liða úrslit gegn Keflavík og undanúrslit gegn Tindastóli, auk þess að hafa náð í undanúrslit bikarkeppninnar á síðasta tímabili.

Hann hefur einnig spilað með Keflavík hér á landi, og áður Njarðvík og Fjölni þar sem hann er uppalinn, komið víða við erlendis og meðal annars spilað sem atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni.

Hörður í leik með íslenska landsliðinu. Hátindur ferilsins hjá honum var EuroBasket 2015. vísir

Fyrir íslenska landsliðið á Hörður að baki 86 leiki en hann fór með liðinu á tvö Evrópumót.

„EuroBasket 2015 var held ég toppurinn, það var einstakt, en á sama tíma er fullt af hlutum sem standa upp úr. Eins og í dag, að spila minn seinasta leik með bróður minn sem þjálfara og besta vin minn með mér í liðinu, það er eitthvað sem ég er mjög ánægður með og stoltur af því að vera hluti af því sem er að gerast hér á Álftanesi.“

Í janúar á síðasta ári varð Hörður stoðsendingahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar frá upphafi, með yfir tvö þúsund stoðsendingar á sínum ferli.

Hann sagðist ekki viss um hvað tæki við að ferlinum loknum, hann ætlaði núna að hlúa að fjölskyldunni og gat ekki svarað því hvort hann myndi koma að þjálfun á næstunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×