Indland gerir árás á Pakistan Jón Ísak Ragnarsson skrifar 6. maí 2025 21:02 Yfirvöld í Pakistan segja að flugskeyti Indverja hafi hæft þrjú skotmörk. X Indland hefur gert árás á Pakistan með flugskeytum á níu staði í Pakistan og í þeim hluta Kashmir-héraðs þar sem Pakistanar ráða ríkjum.
Í yfirlýsingu frá indverskum yfirvöldum segir að ríkisstjórnin hafi sett verkefnið „Operation Sindoor“ af stað og skotið niður innviði hryðjuverkamanna í Pakistan og í Kashmír héraði, „þaðan sem hryðjuverkaárásum gegn Indlandi hefur verið stýrt.“ „Aðgerðirnar hafa verið skilvirkar og útreiknaðar. Engar herstöðvar í Pakistan voru skotmark árásanna,“ segir í yfirlýsingunni. Talsmaður pakistanska hersins sagði í yfirlýsingu að indversk flugskeyti hefðu hæft þrjú skotmörk í Pakistan. Hann sagði að árásin væri heigulsháttur og að Pakistanar myndu svara fyrir sig. BREAKING: India has launched missile strikes into Pakistan, targeting a mosque in Bahawalpur linked to Maulana Masood Azhar, the founder and leader of Jaish-e-Mohammed (JeM), an Islamist terrorist group primarily active in Indian Kashmir. pic.twitter.com/XC7JCWa5wv— Ian Miles Cheong (@stillgray) May 6, 2025 „Aumkunarverð árás“ Í frétt Telegraph er haft eftir pakistönskum yfirvöldum að minnst eitt barn sé látið og tveir slasaðir eftir árásirnar. Eitt flugskeytið hafi lent á mosku í borginni Bahawalpur í Punjab héraði, þar sem sagt er að barn hafi látist og kona og karl slasast. „Þetta er aumkunarverð árás og henni var beint gegn saklausum borgurum í skjóli nætur,“ sagði talsmaður pakistanska hersins í viðtali við ARY news. 🚨 #BREAKING: India has just launched a missile strike on PakistanPakistan vows to retaliateIt’s a full-on war now. pic.twitter.com/b04D1t1K2V— Nick Sortor (@nicksortor) May 6, 2025 Spennan milli Indlands og Pakistan hefur aukist jafnt og þétt eftir að ráðist var á ferðamenn í indverska hluta kasmír-héraðs fyrir tveimur vikum síðan. Minnst tuttugu og fjórir létu lífið þegar hópur manna hóf skotrhíð í átt að ferðamönnunum. Enginn lýsti yfir ábyrgð á árásinni en Indverjar og Pakistanar hafa lengi deilt um yfirráð yfir héraðinu og stjórna bæði löndin hlutum þess. Þarlendir miðlar fullyrtu sumir hverjir að vopnuðu mennirnir hefðu haft tengsl við pakistanska uppreisnarhópa. Gerðu síðast loftárás 2019 Indverjar og Pakistanar, sem eiga báðir kjarnorkuvopn, hafa háð þrjú stríð gegnum tíðina, frá því Indlandi var skipt upp milli hindúa og múslima í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Síðasta stríðið átti sér stað árið 1971 en reglulega hefur komið til átaka þeirra á milli, núna síðast árið 2019. Fyrsta stríð ríkjanna var um Kasmír-hérað sem hefur um árabil þótt eitt mesta spennusvæði heims, ef svo má segja. Árið 2019 gerðu Indverjar loftárásir í Pakistan, eftir að vígamenn hryðjuverkasamtaka sem kallast Jaish-e-Mohammed, gerðu árás yfir landamæri ríkjanna í Kasmír. Indverjar hafa um árabil sakað Pakistana um að leyfa slíkum samtökum að starfa í Pakistan og hafa einni sagt að öryggissveitir í Pakistan hafi starfað með hryðjuverkasamtökum. Sjá ítarlega frétt um spennuna milli Pakistan og Indlands hér: Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Fréttin hefur verið uppfærð
Indland Pakistan Tengdar fréttir Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Attaullah Tarar, upplýsingamálaráðherra Pakistan, segir að landið búi yfir áreiðanlegum upplýsingum sem bendi til þess að Indland hyggist gera árás á allra næstu dögum. 30. apríl 2025 00:10 Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Mikil reiði er á meðal almennings á Indlandi eftir að byssumenn gerðu árás á hóp ferðamanna í Kasmír héraði og drápu tuttugu og sex hið minnsta. 23. apríl 2025 06:56 Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Aukin spenna er á milli Indlands og Pakistan vegna yfirráð í Kashmír héraðinu. Íslamskir vígamenn skutu 26 manns til bana á svæði Indlands. Landamærunum milli landanna hefur verið lokað. 28. apríl 2025 23:02 Mest lesið Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Indland gerir árás á Pakistan Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Innlent Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Innlent Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Erlent Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Innlent Fleiri fréttir Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Sjá meira
Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Attaullah Tarar, upplýsingamálaráðherra Pakistan, segir að landið búi yfir áreiðanlegum upplýsingum sem bendi til þess að Indland hyggist gera árás á allra næstu dögum. 30. apríl 2025 00:10
Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Mikil reiði er á meðal almennings á Indlandi eftir að byssumenn gerðu árás á hóp ferðamanna í Kasmír héraði og drápu tuttugu og sex hið minnsta. 23. apríl 2025 06:56
Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Aukin spenna er á milli Indlands og Pakistan vegna yfirráð í Kashmír héraðinu. Íslamskir vígamenn skutu 26 manns til bana á svæði Indlands. Landamærunum milli landanna hefur verið lokað. 28. apríl 2025 23:02