Fótbolti

Kerfið hrundi og margir misstu af miða á leik hjá sveinum Freys

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson tók við Brann í janúar.
Freyr Alexandersson tók við Brann í janúar. Mynd: Brann SK

Það er óhætt að segja að áhuginn hafi verið mikill þegar opnað var fyrir miðasölu á heimaleik Brann gegn Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Miðasölukerfið hrundið og Brann hefur fengið hundruð tölvupósta og símtöl frá fólki sem vonast eftir miða þó að orðið sé uppselt.

Það hefur skapast mikil hefð fyrir því í Noregi að fólk fjölmenni á fótboltaleikvanga 16. maí, daginn fyrir þjóðhátíðardag Norðmanna, til að hvetja sitt lið.

Áhuginn er þó hvergi meiri en í Bergen og hvað þá núna þegar liðið, með Eggert Aron Guðmundsson innanborðs og Frey Alexandersson sem þjálfara, er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar.

Í hádeginu í gær var opnað fyrir miðasölu og þeir 5.000 miðar sem voru í boði hefðu selst á einni mínútu, samkvæmt heimasíðu Brann, ef ekki hefði verið notast við sérstakt biðraðakerfi og ef sölukerfið hefði ekki hreinlega hrunið vegna aðsóknar.

Um tíma voru um 14.000 manns að reyna að kaupa miða á sama tíma og mátti hver og einn kaupa fjóra miða.

Hins vegar voru eins og fyrr segir aðeins 5.000 miðar til sölu, þó að Brann-leikvangurinn taki 17.500 manns í sæti. Það er vegna þess að 10.000 ársmiðahafar eru hjá Brann. Auk þess eru um 1.000 VIP-sæti og 875 sæti fyrir gestaliðið, auk þess sem slatti af miðum eru fráteknir fyrir góðgerðamál og fleira.

Þegar sölukerfið komst af stað aftur, eftir að hafa hrunið í tvígang, tókst að ljúka miðasölunni. Innan við tveimur tímum eftir að miðasalan hófst hafði Brann fengið 217 tölvupósta og 50 símtöl, og gat félagið þess að það væri ekki með neitt þjónustuver og því væri ekki hægt að svara öllum.

Áður en að þjóðhátíðarleiknum við Sarpsborg kemur þá mætir Brann liði Rosenborg í sannkölluðum stórleik á sunnudaginn. Aðeins eitt stig skilur liðin að í toppbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×