Fótbolti

Flug­eldar sprengdir við hótel Tottenham í nótt

Sindri Sverrisson skrifar
Eins og sjá má var verið að sprengja helling af flugeldum við hótel Tottenham í nótt. Eflaust pirrandi fyrir Dejan Kulusevski og félaga.
Eins og sjá má var verið að sprengja helling af flugeldum við hótel Tottenham í nótt. Eflaust pirrandi fyrir Dejan Kulusevski og félaga. Samsett/Twitter/Getty

Óprúttnir stuðningsmenn norska liðsins Bodö/Glimt reyndu að færa sínu liði aðstoð með því að halda vöku fyrir leikmönnum Tottenham á hóteli þeirra í Noregi í nótt, með því að sprengja flugelda.

Það var klukkan 2:27 í nótt sem að lögreglan í Bodö fékk tilkynningu um að verið væri að sprengja flugelda við hótel Tottenham-liðsins, Scandic Havet. „Flugeldasýninguna“ má sjá hér að neðan en Bodö Ultras, stuðningsmannahópur Bodö/Glimt, birti myndskeið á samfélagsmiðlum og taggaði Tottenham í færslunni.

„Sökudólgarnir sáust hlaupa af vettvangi. Þegar lögreglan kom á staðinn fundust nokkrar flugeldatertur,“ sagði fulltrúi lögreglunnar, May Wenche Hansen, við NRK. Ekki var búið að kveikja í öllum tertunum og gerði lögreglan þær upptækar.

Seinni leikur Bodö/Glimt og Tottenham, í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta, hefst klukkan 19 í kvöld á Stöð 2 Sport 2. Á sama tíma er seinni leikur Manchester United og Athletic Bilbao á Vodafone Sport.

Tottenham vann Bodö/Glimt 3-1 í Lundúnum, þar sem Ulrik Saltnes minnkaði muninn á 83. mínútu eftir mörk frá Brennan Johnson, James Maddison og Dominic Solanke.

Einvígið er því enn opið og stuðningsmenn Bodö/Glimt meðvitaðir um möguleikana á að komast í sjálfan úrslitaleik keppninnar, því á gervigrasinu í Bodö hafa Lazio, Olympiacos, Twente og fleiri lið þurft að sætta sig við tap í vetur.

Það gæti hjálpað ef leikmenn Tottenham fengu minni svefn en ella vegna flugeldanna í nótt. Stuðningsmenn Bodö hafa notað sömu aðferðir áður því þeir sprengdu líka flugelda til að vekja leikmenn Ajax í febrúar i fyrra. Ajax hafði þó betur í því einvígi, eftir framlengdan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×