

Umfjöllun um Ljósleiðaradeildina og rafíþróttir á Íslandi.
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það viruz í liði Breiðabliks sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
Rafíþróttasamtök Íslands, RÍSÍ, hefur gert samstarfssamning við Esports Coaching Academy um dreifingu á æfinga- og stuðningsefni sem mun aðstoða rafíþróttaþjálfara hér á landi.
Eftir stutt frí fer Ljósleiðaradeildin í CS:GO af stað á ný með tveimur leikjum þegar sjöunda umferð hefst í kvöld.
Rafíþróttasamtök Íslands, RÍSÍ, birtu í vikunni stefnu samtakanna á heimasíðu sinni þar sem kemur meðal annars fram að samtökin ætli sér að vinna að því að jafna kynjahlutfallið innan þeirra og um leið auka sýnileika annarra en karla innan rafíþróttaumhverfisins.
Íslenskir aðdáendur tölvuleiksins CS:GO ættu að geta glaðst yfir fréttum dagsins, en atvinnumannadeildin BLAST Premier hefur göngu sína á ný á Stöð 2 eSport í dag. Átta liða úrslitin verða öll leikin í dag, en undanúrslit og úrslit fara fram um helgina.
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að vísa tillögu um að veita íþróttafélögum sem eru með rafíþróttadeildir styrk á næsta ári til fjárhagsáætlanargerðar. Um er að ræða tuttugu milljóna króna sem verja á til íþróttafélaganna.
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það TH0R í liði Dusty sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
Heil umferð var leikin í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í gærkvöldi og voru viðureignirnar ekki af verri endanum.
Dusty og LAVA settu endapunktinn við þennan fyrsta Ofurlaugardag Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO.
SAGA mætti Fylki í næst síðasta leik Ofurlaugardagsins í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO.
Það var til mikils að vinna fyrir Þór og Ármann þegar liðin mættust í kvöld en þau hafa bæði látið finna fyrir sér í toppbaráttunni.
Hart var barist á botni Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO þegar lið TEN5ION og Viðstöðu mættust fyrr í kvöld.
Fyrsti Ofurlaugardagur Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hófst á viðureign Breiðabliks og NÚ. Breiðablik var í sjöunda sæti deildarinnar en NÚ í öðru.
Fyrsti Ofurlaugardagur tímabilsins í Ljósleiðaradeildinni fer fram í dag. Útsending Stöðvar 2 Esport hefst klukkan 16.45 en einnig má fylgjast með á Twitch-rás Rafíþróttasambands Íslands sem og í spilaranum neðst í fréttinni.
Dusty enn á toppnum en Þórsarar komnir til baka.
Lið Þórs og Viðstöðu mættust í lokaleik 5. umferðar í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í gærkvöldi.
Það var hið ósigraða lið Dusty sem tók á móti fyrrum liðsfélaga sínum, LeFluff í Fylki.
Það voru Ármann og NÚ, liðin í 2. og 3. sæti Ljósleiðaradeildarinnar sem mættust í Nuke í gærkvöldi. Framlengingu þurfti til að skera úr um leikinn.
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það LeFluff í liði Fylkis sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
Þrír leikir eru á dagskrá þegar 6. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike:Global Offensive hefst í kvöld. Í fyrsta leik mætast Þór og Viðstaða, í öðrum leik mætast Dusty og Fylkir á meðan Ármann og NÚ mætast í þriðja og síðasta leik kvöldsins.
Það var sannkölluð botnbarátta þegar TEN5ION mætti Breiðabliki í gærkvöldi. Breiðablik hafði einungis unnið einn leik í fjórum umferðum og TEN5ION engan.
LAVA og SAGA voru jöfn við miðju deildarinnar fyrir leikinn í gærkvöldi en sigurliðið gat skotið sér upp í 2.-4. sæti.
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Tight í liði Ten5ion sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
Tveir leikir eru á dagskrá þegar 5. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hefst í kvöld. Öll fjögur liðin sem mæta til leiks í kvöld eru í fimmta sæti eða neðar, en geta skotist upp töfluna með sigri.
Leikmaður vikunnar er nýr liður á Vísi þar sem lesendur fá að kynnast einum leikmanni í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í hverri umferð.
Eftir 4. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO er Dusty eina liðið með fullt hús stiga.
Það var til mikils að vinna fyrir bæði lið þegar lið Viðstöðu og SAGA mættust í hnífjöfnum leik í Ancient.
Þórsarar þurftu á sigri að halda til að jafna Dusty að stigum á toppnum en með sigri gat NÚ smokrað sér upp við hlið Þórs.
Breiðablik og LAVA sem voru í 7. og 8. sæti deildarinnar tókust á í gærkvöldi. LAVA hafði mikla yfirburði.
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það blóðug barátta á Ancient kortinu í framlengdum leik SAGA og Viðstöðu sem á sviðsljósið.