„Viðeigandi að fagna komu hennar með marki“ Nýbakaði faðirinn Höskuldur Gunnlaugsson leiddi Breiðablik út á völl sem fyrirliði og skoraði fyrsta mark tímabilsins í 2-0 sigri gegn Aftureldingu. 5.4.2025 21:55
„Skrifast á ákveðinn sviðsskrekk“ Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var svekktur með tap í fyrsta leik liðsins í efstu deild. 2-0 varð niðurstaðan gegn Breiðablik, sem Magnús skrifar á ákveðinn sviðsskrekk, og bróðir hans kom í veg fyrir að Afturelding minnkaði muninn. 5.4.2025 21:36
Uppgjörið: Breiðablik - Afturelding 2-0 | Meistararnir með öruggan sigur í opnunarleiknum Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu öruggan 2-0 sigur gegn Aftureldingu í opnunarleik Bestu deildar karla. Afturelding var að spila sinn fyrsta leik í efstu deild og fékk það erfiða verkefni að mæta Íslandsmeisturunum á útivelli. Ljóst var frá fyrstu mínútu að munnbitinn væri of stór fyrir mennina úr Mosfellsbænum að kyngja. 5.4.2025 21:15
„Ískaldar í hausnum og þá kemur þetta“ Ingibjörg Sigurðardóttir leiddi íslenska landsliðið í fyrsta sinn sem fyrirliði, í markalausu jafntefli gegn Noregi á Þróttarvellinum. Hún segir aukin spenning hafa fylgt því að bera bandið, sem hvarf um leið og leikurinn byrjaði. Hún hjálpaði við að halda íslenska markinu hreinu en var engu að síður svekkt með niðurstöðu leiksins. 4.4.2025 19:52
„Það er einfalt að segja það, en við þurfum bara að skora“ „Við viljum vinna alla leiki á heimavelli og mér fannst við eiga mjög góð færi, nóg til að skora allavega eitt“ sagði Sveindís Jane Jónsdóttir eftir markalaust jafntefli Íslands gegn Noregi, þar sem Ísland fékk fjölda færa til að klára leikinn. Hins vegar er hægara sagt en gert að koma tuðrunni yfir línuna. 4.4.2025 19:21
Uppgjörið: Ísland - Noregur 0-0 | Skemmtilegur og skapandi sóknarleikur skilaði ekki sigri Ísland gerði 0-0 jafntefli við Noreg í þriðju umferð Þjóðadeildarinnar. Færasköpun var alls ekki vandamál Íslands en nýtingin gerði það að verkum að leikurinn endaði markalaus. Ísland er nú komið með tvö stig eftir þrjá leiki í Þjóðadeildinni og gefst annað tækifæri á fyrsta sigrinum gegn Sviss næsta mánudag. 4.4.2025 19:00
„Mæti honum með bros á vör“ „Mjög erfiður leikur, eins og á að vera í úrslitakeppninni, ég er ánægður með að við höfum staðið saman fram á síðustu mínútu, spilað af hörku og sótt sigurinn“ sagði miðherjinn David Okeke eftir 89-95 sigur Álftaness á útivelli í fyrsta leik gegn Njarðvík, þar sem hann háði harða baráttu við fyrrum liðsfélaga sinn Domynikas Milka. 3.4.2025 21:48
Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 89-95 | Álftnesingar sóttu sigur í stemningslítinn Stapaskóla Álftanes sótti 89-95 sigur gegn Njarðvík í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar karla. Tap varð því niðurstaðan í fyrsta úrslitakeppnisleik Njarðvíkinga á nýjum heimavelli, í IceMar höllinni við Stapaskóla, þar sem stemningin var mun minni en þekktist í Ljónagryfjunni gömlu. 3.4.2025 18:16
Fimm fengu bann fyrir slagsmálin Fimm leikmenn voru dæmdir í leikbann fyrir sinn þátt í slagsmálum sem brutust út í leik Detroit Pistons og Minnesota Timberwolves. Isaiah Stewart var sá eini sem fékk tveggja leikja bann, þar sem hann á sér sögu um ofbeldi. 2.4.2025 07:01
Dagskráin í dag: Úrslitakeppni karla hefst Fjöruga dagskrá er á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone. Úrslitakeppni Bónus deildar karla hefst með tveimur leikjum í kvöld. Átta liða úrslit Meistaradeildar ungmenna eru í fullum gangi. Svo má einnig finna hafnaboltaleiki og gott golf. 2.4.2025 06:02