Aflraunir

Hafþór Júlíus keppir á móti í Síberíu
Íslenski aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson verður meðal keppenda í aflraunakeppni í Síberíu í Rússlandi.

Helsti keppinautur Jóns Páls látinn
Geoff Capes, fyrrum sterkasti maður heims og goðsögn í aflaunaheiminum, er látinn en hann varð 75 ára gamall.

„Bara spurning um hvar og hvenær ég bæti heimsmetið“
Hafþór Júlíus Björnsson er þess fullviss að hann muni bæta heimsmetið í réttstöðulyftu, heimsmet sem hann á sjálfur en telur að aðrir gæti verið nú svolítið sólgnir í.

Fjallið fattaði ekki strax að hann hafði sett heimsmet
Hafþór Júlíus Björnsson er mættur aftur af krafti inn í aflraunaheiminn eftir nokkurra ára hlé en hann varð annar á dögunum í keppninni um sterkasta mann jarðar, Strongest Man On Earth.

Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet
Hafþór Júlíus Björnsson varð í öðru sæti í keppninni um sterkasta mann jarðarinnar, Strongest Man On Earth, sem fór fram um helgina í Loveland í Colorado fylki í Bandaríkjunum.

Fyrsta konan til að lyfta steininum Fullsterki
Þýska aflraunakonan Sandra Bradley hefur lagt það í vana sinn að mæta til Íslands og lyfta steinum sem engin kona hefur lyft áður.

Magnús Ver trúlofaði sig á stórafmælinu
Íslenski kraftajötuninn Magnús Ver Magnússon á stórafmæli í dag. Hann er sextugur og til þess að gera tilveruna enn sætari fór hann á skeljarnar í gær og bað kærustunnar sinnar vaxtaræktarkonunnar Monicu Bega. Hún sagði að sjálfsögðu já.

Blóðið fossaði en stöngin fór upp
Aflraunakonan Hannah Linzay vakti mikla athygli fyrir eina lyftu sína á Arnold Strongwoman Classic aflraunmótinu um helgina.

Hafþór, Anníe og Eiður með hæstu tekjurnar
Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson og CrossFit-stjarnan Anníe Mist Þórisdóttir eru það íþróttafólk sem hafði langhæstar tekjur á Íslandi á síðasta ári, samkvæmt Tekjublaði Frjálsar verslunar sem kom út í dag.

Kristján sterkasti maður Íslands
Kristján Jón Haraldsson fór með sigur af hólmi um helgina í aflraunakeppninni Sterkasti maður Íslands. Hann sló meðal annars við sigurvegara síðasta árs, Stefáni Karel Torfasyni, í jafnri keppni.

Lyfti fimmfaldri líkamsþyngd sinni og setti heimsmet
Chloe Brennan er kannski ekki mikil um sig en hún er hraustari en flestir. Það sýndi hún og sannaði á The Arnold Strongman Classic 2022 um helgina.

Hnefaleikar og ólympískar lyftingar gætu dottið út af Ólympíuleikunum
Hnefaleikar, ólympískar lyftingar og nútímafimmtarþraut eru ekki á listanum yfir keppnisgreinar á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028. Það gæti þó breyst.

Bætti sitt eigið heimsmet með því að lyfta þessum risastein
Kraftakarlinn Eyþór Ingólfsson Melsteð byrjaði vel á Magnús Ver Classic aflraunamótinu í gær og lét ekki snjókomuna trufla sig.

Ellen Lind sterkust á Íslandi þriðja árið í röð eftir háspennu
Ellen Lind Ísaksdóttir er áfram sterkasta kona Íslands en hún vann keppnina þriðja árið í röð um helgina. Aðeins Bryndís Ólafsdóttir hefur oftar unnið titilinn.

Elsa heimsmeistari og setti þrjú heimsmet
Elsa Pálsdóttir varð í dag heimsmeistari öldunga í klassískum kraftlyftingum í -76 kg flokki. Hún setti einnig þrjú heimsmet, í hnébeygju, réttstöðulyftu og samanlögðum árangri.

Tekjur Íslendinga: Hafþór Júlíus mokaði inn milljónum
Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson þénaði hátt í tíu milljónir króna á mánuði á síðasta ári og var langtekjuhæstur í hópi íþróttamanna og þjálfara á Íslandi, samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar.

Húsafellshellan færði Stefáni Karel titilinn Sterkasti maður Íslands 2021
Stefán Karel Torfason vann keppnina Sterkasti maður Íslands um helgina og komst þar í hóp með föður sínum.

Fjallið hefur misst fimmtíu kíló: Þarf ekki lengur að pína ofan í mig mat
Hafþór Júlíus Björnsson hefur þurft að gerbreyta því hvernig hann æfir og borðar um leið og hann breytir sér úr aflraunamanni í hnefaleikamann.

Gríðarlegur stærðarmunur þegar Fjallið slóst við Gunnar Nelson
Fjallið Hafþór Júlíus Björnsson mætti í Mjölni á dögunum til þess að slást við Gunnar Nelson og hann tók æfinguna líka upp fyrir fylgjendur sína

Anníe Mist með Fjallið í CrossFit: Ég var alltaf smá stressuð um að ég myndi drepa Hafþór
Anníe Mist Þórisdóttir og Frederik Ægidius fengu það stóra verkefni að koma Fjallinu Hafþóri Júlíus Björnssyni í betra form fyrir bardagann við Eddie Hall í september.

Fjallið lofar að bjóða upp á eitthvað sérstakt í september
Fjallið þurfti að skipta út Simon fyrir Simon en mun samt áður berjast í hringnum í stærstu borg Sameinuðu arabísku furstadæmanna í næsta mánuði.

Fjallið útlokar ekki að berjast við Tyson Fury ef hann rotar Eddie Hall
Hafþór Júlíus Björnsson hefur það mikla trúa á sér í hringnum á móti Eddie Hall í Las Vegas í haust að hann er þegar farinn að velta fyrir sér næsta bardaga á eftir þessum sem bíður hans í september.

Fjallið mældi COVID-áhrifin á sig með því að gera armbeygjur
Fjallið Hafþór Júlíus Björnsson er kominn aftur af stað eftir kórónuveirusmit en hann er þó ekki hundrað prósent.

Gekk inn á æfingu og sá Jón Pál deyja: „Maður er ekki skotheldur“
Magnús Ver Magnússon er fjórfaldur sterkasti maður heims og vann titilinn þrjú ár í röð. Magnús er sveitastrákur sem vissi alltaf að hann væri sterkur og skaut upp á stjörnuhimininn á ógnarhraða.

Fjallið elskaði það að fá nokkur högg í andlitið frá hinum hljóðláta
Fjallið steig inn hringinn á móti „hljóðláta manninum“ í Dúbaí á föstudagskvöldið.

Skotin halda áfram að ganga á milli Hafþórs og Eddie
Þegar minna en eitt ár er þangað til að Eddie Hall og Hafþór Júlíus Björnsson berjast í Las Vegas halda skotin að ganga þeirra á milli á samfélagsmiðlum.

„Thor veit ekki hvað er að fara gerast“
Það er minna en ár þangað til að Englendingurinn Eddie Hall og Íslendingurinn ætla að berjast í Las Vegas.

Fjallið útskýrði af hverju hann hætti í aflraunum
Hafþór Júlíus Björnsson sat fyrir svörum aðdáenda á YouTube síðu sinni í gær.

Svona ætlar Eddie að afgreiða Hafþór
Nú er minna en ár þangað til að aflraunamennirnir Hafþór Júlíus Björnsson og Eddie Hall ætla að berjast í boxhringnum í Las Vegas.

„Hafþór of upptekinn að æfa til þess að verða rotaður af mér næsta ári“
Eddie Hall, aflraunamaðurinn sem ætlar að berjast við Hafþór Júlíus Björnsson í Las Vegas á næsta ári, heldur áfram að skjóta á Fjallið.